Erlent

Rússar muni skrúfa fyrir gas­flæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Gazprom bygging í Sankti Pétursborg. Mynd tengist efni fréttar ekki beint.
Gazprom bygging í Sankti Pétursborg. Mynd tengist efni fréttar ekki beint. EPA-EFE/ANATOLY MALTSEV

Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma.

Viðgerða á túrbínu var kennt um tafir á gasflæði til Þýskalands í júlí en miklar deilur spunnust út frá viðgerðunum. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelenskiy sakaði yfirvöld Kanada sem vildu skila túrbínunni til Rússa eftir viðgerðir, um það að gera lítið úr refsiaðgerðum gagnvart Rússum vegna stríðsins í Úkraínu. Túrbínan flýtti flæði á gasi í gegnum leiðsluna.

Árlegar viðgerðir á leiðslunni sjálfri voru gerðar undir lok júlí en leiðslunni var lokað á meðan. Óttast var að Pútín Rússlandsforseti myndi nota lokunina til þess að refsa Evrópulöndum fyrir mótmæli þeirra gegn innrás Rússlands í Úkraínu.

Á endanum skrúfuðu Rússar frá gasinu þann 21. júlí síðastliðinn eftir tíu daga lokun en á meðan lokuninni stóð hafði framkvæmdastjórn ESB hvatt aðildarríki til samdráttar í gasnotkun um fimmtán prósent. Ljóst var að möguleiki væri á því að Evrópa myndi ekki eiga nóg gas fyrir veturinn.

Gazprom tilkynnti svo stuttu eftir að gasflæði um leiðsluna hófst aftur að flæðið yrði minnkað enn frekar eða niður í tuttugu prósent. Þann 3. ágúst síðastliðinn virtist ljóst að túrbínan sem flýtti fyrir flæði á gasi um leiðsluna væri tilbúin til flutnings til Rússlands.

Samkvæmt Reuters liggur lokun á leiðslunni aftur fyrir en í þrjá daga í þetta sinn, ástæða lokunarinnar sé sögð vera viðhald en Evrópskir orkumálaráðherrar muni funda þann 9. september næstkomandi vegna málsins. Sem dæmi um spennuna sem ríkir vegna málsins má nefna að orkumálaráðherra Frakklands sakaði Rússland um að nota flæði á gasi til Evrópu sem stríðsvopn en það hefur Úkraínuforseti einnig gert.

Miðillinn hefur einnig eftir talsmanni Kreml að það eina sem standi í vegi fyrir gasflæði í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna séu refsiaðgerðir vestrænna ríkja gagnvart Rússlandi.


Tengdar fréttir

Óttast að Pútín refsi Evrópu með því að hefta flæði á gasi

Tímabundinni lokun Nord Stream 1 gasleiðslunnar vegna árlegs viðhalds mun ljúka nú í lok vikunnar en í kjölfarið gætu átök vegna leiðslunnar náð hámarki. Leiðslunni er stjórnað af rússneska fyrirtækinu Gazprom. Óttast er að Pútín noti lokunina til þess að refsa Evrópu.

Ekki víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn

Á mánudag tilkynnti rússneska fyrirtækið Gazprom að flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna myndi skerðast niður í 20 prósent. Að sögn bandarískra embættismanna hefur gas minnkun Rússa verið þeirra „versti ótti.“ Umræður vegna aukinnar kjarnorkunotkunar séu á næsta leyti og ekki sé víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn.

Rússar skrúfa frá gasinu

Rússar hófu gasútflutning með þeirra stærstu gasleiðslu, Nordstream, á ný í morgun eftir tíu daga hlé. Óttast var að Rússar myndu skrúfa fyrir gasstreymið fyrir fullt og allt en Þjóðverjar reiða sig að miklu leyti á gasleiðsluna.

Í­búar fari í kaldar sturtur til þess að spara gas

Stjórnvöld í þýsku borginni Hannover hafa skrúfað fyrir heitt vatn í byggingum sem opnar eru almenningi til þess að spara gas en Þjóðverjar hafa kvartað yfir skertu flæði á gasi frá Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×