Innlent

Laumaði Lars fram­hjá dyra­vörðum og starfs­­fólki

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hér sést Lars í bakgrunninum við myndavegg Bullseye. Honum var rænt þaðan í gærkvöldi.
Hér sést Lars í bakgrunninum við myndavegg Bullseye. Honum var rænt þaðan í gærkvöldi. Friðrik Grétarsson

Heimilisbangsanum á pílustaðnum Bullseye við Snorrabraut var stolið í gærkvöldi. Rekstrarstjórinn segir málið vera dapurlegt í alla staði og skorar á þjófinn að skila bangsanum.

Bangsinn Lars hefur búið á Snorrabraut 37 allt frá því að pílustaðurinn Bullseye opnaði þar undir lok árs 2020. Lars er skírður í höfuðið á fastakúnna staðarins, Lars Kresse. 

„Þetta er dapurlegt mál í alla staði. Hann var í geymslu fyrst en var tekinn fram um daginn og hefur vakið mikla lukku. Margir hafa látið ljósmynda sig með honum og hann hefur fengið góðar móttökur. Það er þyngra en tárum taki að honum hafi verið stolið,“ segir Skorri Höskuldsson, rekstrarstjóri Bullseye, í samtali við fréttastofu. 

Lars var afar vinsæll og vildu margir fá mynd af sér með honum.

Lars var stolið á háannatíma í gærkvöldi og tóku dyraverðir og starfsfólk ekki eftir því að hann væri horfinn fyrr en það var orðið of seint. Ekki er hægt að sjá hver rændi Lars á öryggismyndavélum og einhvernveginn hefur þjófnum tekist að koma stórum og stæðilegum Lars framhjá dyravörðum staðarins. 

„Þetta hefur verið einhver þaulvanur bangsaþjófur á ferðinni. Við auðvitað skorum á viðkomandi að skila honum aftur á Bullseye. Það er ekkert annað í stöðunni,“ segir Skorri. 

Hann telur að einhver hafi aðeins prjónað yfir sig í gleðinni eftir skemmtilegt kvöld og gott pílukast og þótt þetta fyndið. Skorri segir starfsfólk Bullseye þó ekki hlæja yfir þessu. Staðurinn sé tilbúinn að veita fundarverðlaun.

„Til þess sem getur bent okkur á hvar Lars er niðurkominn. Þeim er boðið í pílu, drykk og mat,“ segir Skorri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×