Allur herafli Rússlands yrði þá skipaður rúmum tveimur milljónum hermanna en Pútín hefur á árum áður fækkað hermönnum og reynt að gera herafla Rússlands skilvirkari. Skipunin í dag er í fyrsta sinn í fimm ár sem hann breytir uppbyggingu hersins, samkvæmt frétt New York Times.
Innrás Rússa í Úkraínu hefur litlum árangri skilað á undanförnum vikum eða allt frá því borgin Lysychansk í Luhansk-héraði féll í hendur Rússa.
Sjá einnig: Ætla að grafa hægt og rólega undan Rússum
Rússar hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli frá því innrásin hófst fyrir hálfu ári síðan. Skipun Pútíns þykir benda til þess að forsetinn sé að undirbúa sig fyrir langvarandi hernað í Úkraínu.
Þá var sagt frá því í dag að Rússar hefðu aftengt kjarnorkuverið í Saporisja frá úkraínska rafveitukerfinu.
Engar formlegar útskýringar á skipun Pútíns um stækkun hersins hafa verið gefnar af yfirvöldum í Rússlandi. Sérfræðingar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sögðu frá því fyrr í mánuðinum að talið væri að allt að áttatíu þúsund rússneskir hermenn hefðu fallið eða særst í átökunum í Úkraínu.
Sjá einnig: Allt að áttatíu þúsund hermenn sagðir fallnir eða særðir
AP fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum að það væri erfitt fyrir Rússa að nýta þennan aukna mannafla, ef það tekst yfir höfuð að ráða nýja hermenn, í átökunum í Úkraínu. Þó ekki nema bara með tilliti til þess að það taki jafnvel nokkur ár að þjálfa hermenn á nútímavopnakerfi.
Menn sem kvaddir eru í herinn eru bara ár í hernum og illa hefur gengið að finna sjálfboðaliða.
Michael Kofman, sem starfar hjá hugveitunni CNA og sérhæfir sig í málefnum rússneska hersins, segir óljóst hvaðan þessi nýi mannafli eigi að koma. Skipuninni gæti snúið að yfirstandandi tilraunum Rússa til að mynda nýjar sjálfboðaliðaherdeildir eða mögulega standi til að fella sveitir aðskilnaðarsinna í Luhansk og Donetsk formlega inn í rússneska herinn.
The volunteer units in aggregate do not amount to a dramatic expansion of the force. But Moscow may expect to integrate occupation forces, and LDNR troops, especially if they go through with annexation. Putin had mentioned he supported giving LDNR fighters army veteran status. 3/
— Michael Kofman (@KofmanMichael) August 25, 2022
Annar sérfræðingur í málefnum hersins segir að skipunin gæti reynst Rússum erfið. Það dugi ekki að ráða nýliða í tugþúsunda tali. Það þurfi einnig yfirmenn og liðþjálfa til að þjálfa nýja hermenn. Rússar hafi misst gífurlega marga foringja í innrásinni í Úkraínu og hafi í raun ekki burði til að þjálfa nýja hermenn að svo stöddu.
Þar að auki, eigi hermenn sem kvaddir eru í herinn, ekki að taka þátt í aðgerðum hersins á erlendri grundu. Stækkunin fæli því ekki sjálfkrafa í sér að Rússar hefðu fleiri hermenn til að beita í Úkraínu.
Conscripts still aren't supposed to be deployed into Ukraine unless they sign a contract. The conscripts who were deployed in the 1st week were sent back. Even if Russia increases the manpower of the military, that doesn't mean it will have more guys available to send to Ukraine.
— Rob Lee (@RALee85) August 25, 2022
Herdeildir undirmannaðar fyrir innrásina
Þessir sömu sérfræðingar skrifuðu grein fyrr í sumar þar sem þeir sögðu frá alvarlegum göllum á samsetningu rússneska hersins. Herinn skorti sérstaklega fótgöngulið og að tilraunir til að ráða nýja atvinnuhermenn hafi ekki náð markmiðum forsvarsmanna hersins um árabil.
Það gerðist samhliða því að Rússar fjölguðu herdeildum og leiddi það til töluverðrar undirmönnunar í hernum.
Vélvæddar flokksdeildir (motorized platoon) hafi til að mynda eingöngu haft næga menn til að keyra bryndreka sína en enga hermenn til að fara úr þeim og styðja skrið- og bryndreka hersins fótgangandi, sem er gífurlega mikilvægt í nútímahernaði og sérstaklega þegar barist er í byggðum bólum.