Bára Mjöll nýr meðeigandi hjá Langbrók Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2022 08:21 Bára Mjöll Þórðardóttir hefur að undanförnu stafað við rekstrar- og markaðsráðgjöf, en var þar áður forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone/Stöð 2 (Sýn hf.) og upplýsingafulltrúi hjá Bláa lóninu. Aðsend Bára Mjöll Þórðardóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafafyrirtækið Langbrók sem meðeigandi.
Í tilkynningu segir að Bára Mjöll hafi víðamikla reynslu á sviði viðskiptaþróunar, markaðs- og samskiptamála. Síðastliðin ár hafi hún sinnt rekstrar- og markaðsráðgjöf þar sem hún hafi unnið með fyrirtækjum að mörkun, viðskiptaþróun og endurskipulagningu. „Áður var Bára Mjöll forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone/Stöð 2 (Sýn hf.) og upplýsingafulltrúi hjá Bláa lóninu. Bára Mjöll starfaði í fjármálageiranum um árabil, lengst af á samskiptasviði Arion banka en þar kom hún meðal annars að stefnumótun í samfélagslegri ábyrgð. Bára Mjöll er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, ásamt löggildingu í verðbréfamiðlun. Hún lagði auk þess stund á M.Sc. nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stundar nú diplómanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði við Háskóla Íslands. Bára Mjöll hefur sinnt góðgerðarmálum til fjölda ára, hún situr í stjórn Lífs styrktarfélags og er ein af stofnendum góðgerðarfélagsins Lífskrafts. Áherslur Langbrókar eru á ráðgjöf á sviði samfélagsábyrgðar, almannatengsla, markaðsmála og breytingastjórnunar. Ráðgjöfin byggir á heildrænni stefnumörkun þar sem tækifæri fyrirtækja eru kortlögð með samfélagsábyrgð og sjálfbærni að leiðarljósi með það að markmiði að efla samkeppnishæfni fyrirtækja. Langbrók vinnur jafnframt með stjórnendum fyrirtækja í stefnumörkun og innleiðingu samfélagsábyrgðar og samfélagsskýrslugerðar þar sem stuðst er við alþjóðamælikvarða, UN Global Compact, Global Reporting Initiative (GRI), ESG/UFS og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG),“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira