Einn lést og annar særðist í skotárás sem framin var í heimahúsi á Blönduósi á sjötta tímanum í morgun. Sá sem framdi árásina fannst einnig látinn á vettvangi.
Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar, las upp yfirlýsingu sveitarstjórnar fyrir hönd allra íbúa Húnabyggðar fyrir fjölmiðla rétt í þessu. Hann vottar öllum hlutaðeigandi samúð sína.
„Við erum enn þá að vinna úr því að þetta hafi raunverulega gerst. Hugur allra íbúa Húnabyggðar er hjá þeim látnu, hlutaðeigandi og aðstandendum þeirra sem tengjast þessum hræðilega atburði. Samfélagið er í einhvers konar áfalli og alli reru að reyna að ná utan um þessa atburði og þæ tilfinningar sem þeim fylgja,“ segir Guðmundur.
Hann segir að í litlu samfélagi á borð við Blönduóss séu allir kunningjar, vinir og eða ættingjar að atburður sem sá sem varð í morgun risti djúpt í samfélaginu.
Lokaður upplýsingafundur í kvöld
Guðmundur segir að klukkan 20 í kvöld verði haldinn lokaður upplýsingafundur fyrir íbúa Húnabyggðar í félagsheimilinu á Blöndósi. Í tilkynningu sveitarfélagsins á Facebook segir að séra Magnús Magnússon muni stýra fundinum og Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, muni fara yfir málsatvik að því leyti sem unnt er.
Lögreglan á Norðurlandi vestra gaf rétt í þessu frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að rannsókn málsins standi yfir og sé á forræði lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og vegna rannsóknarhagsmuna muni lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, eðli máls samkvæmt, ekki veita upplýsingar um hana.
Sveitarstjórn biðlar til fjölmiðla að veita samfélaginu svigrúm til að vinna með þær sterku tilfinningar sem fylgja svona áfalli.
Dökk ský yfir Húnabyggð
Sveitarstjórn Húnabyggðar biðlar til landsmanna að standa við bakið á íbúum Húnabyggðar og að hugsa vel til þeirra sem atburðinum tengjast. „Það eru dökk ský yfir okkur núna en með ykkar hjálp komumst við í gegnum þetta saman,“ segir Guðmundur.
Þá leggur sveitarstjórn áherslu á við alla sem eiga um sárt að binda að Rauði krossinn á Íslandi sinni fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sími Rauða krossins, 1717, sé opinn allan sólarhringinn.
Við í sveitarstjórninni viljum gefa út opinbera tilkynningu vegna þess voveiflega atburðar sem gerðist á Blönduósi að morgni sunnudags 21. ágúst. Við munum að svo stöddu ekki gefa kost á okkur í opin viðtöl en ég mun hér með lesa sameiginlega yfirlýsingu fyrir hönd allra í samfélaginu.
Íbúar svæðisins eru harmi slegnir og við erum ennþá að vinna úr því að þetta hafi raunverulega gerst.
Hugur allra íbúa Húnabyggðar er hjá þeim látnu, hlutaðeigandi og aðstandendum þeirra sem tengjast þessum hræðilega atburði. Samfélagið er í einhverskonar áfalli og allir eru að reyna ná utan um þessa atburði og þær tilfinningar sem þeim fylgja. Í litlu samfélagi eins og okkar eru allir kunningjar, vinir og/eða ættingjar og atburður sem þessi ristir samfélagið djúpt.
Lokaður upplýsingafundur lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila fyrir íbúa svæðisins verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 20. Að þeim fundi loknum verður boðið upp á sálrænan stuðning og samveru i Blönduóskirkju.
Sveitarstjórn beinir þeirri ósk til fjölmiðla að sýna því skilning að samfélagið er í sárum og þarf svigrúm til að vinna með þær sterku tilfinningar sem fylgja svona áfalli. Rétt er að árétta að allar tæknilegar upplýsingar um málsatvik eru á borði lögreglunnar sem sér um upplýsingagjöf vegna málsins.
Við biðlum til landsmanna allra að standa með okkur á þessum erfiðu tímum, við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur. Eins óskum við þess að þið hugsið vel til þeirra sem þessum atburði tengjast. Það eru dökk ský yfir okkur núna en með ykkar hjálp komust við í gegnum þetta saman.
Við leggjum áherslu á við alla sem eiga um sárt að binda a Rauði krossinn á Íslandi sinnir fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi og sími þeirra 1717 er opinn allan sólarhringinn.
Með vinsemd og virðingu,
sveitarstjórn og sveitarstjóri.