Myrtu níu óbreytta borgara eftir áflog í fangelsi Bjarki Sigurðsson skrifar 12. ágúst 2022 23:51 Fangelsið í Ciudad Juárez þar sem allt byrjaði. EPA/Luis Torres Meðlimir mexíkóska eiturlyfjahringsins Los Mexicles myrtu níu óbreytta borgara í borginni Ciudad Juárez í dag. Þeir gengu berserksgang á götum borgarinnar eftir að tveir fangar voru drepnir í fangelsi borgarinnar.
Í gær urðu slagsmál í fangelsi borgarinnar milli meðlima eiturlyfjahringjanna Sinaloa og Los Mexicles. Slagsmálin enduðu með því að tveir voru skotnir til bana af fangavörðum og fjórir aðrir hlutu skotsár. Sextán fangar til viðbótar slösuðust í slagsmálunum. Eftir að fregnir af þessu bárust til meðlima Los Mexicles sem ekki sitja í fanglesi fóru þeir um götur borgarinnar og myrtu óbreytta borgara til að hefna fyrir drápin í fangelsinu. „Þetta voru ekki bara átök milli tveggja hópa, þetta komst á þann stað að þeir fóru að skjóta óbreytta borgara, saklaust fólk. Það er það óheppilegasta í þessu öllu saman,“ segir Ricardo Mejía, öryggismálaráðherra Mexíkó, í samtali við The Guardian. Fjórir starfsmenn útvarpsstöðvarinnar MegaRadio sem voru í beinni útsendingu fyrir utan verslun í borginni voru drepnir af meðlimum Los Mexicles. Í öðrum hlutum borgarinnar var kveikt í verslunum og fleiri skemmdarverk gerð. Tíu hafa verið handteknir vegna málsins en sex þeirra eru þekktir meðlimir Los Mexicles.
Mexíkó Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira