Viðskipti innlent

Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða.
Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða. Sigurjón Ólason

Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma.

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en fyrirtækin Laxar fiskeldi og Fiskeldi Austfjarða voru í lokaferli sameiningar í fyrra þegar sjúkdómurinn uppgötvaðist. Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri sameinaðs félags, segir það hafa verið mikið áfall en þó tímabundið. Núna sé unnið að því að hreinsa stöðvarnar en svo fari nýr fiskur í kvíarnar.

Laxeldiskvíar í Berufirði.Vilhelm Gunnarsson

„Núna erum við að setja fisk í Fáskrúðsfjörð og við munum aftur setja fisk í Reyðarfjörð núna í haust. Þannig að við erum að fara að halda áfram á fullum hreyfli.

En það er bara þannig að í nokkra mánuði mun vinnsla falla niður í Búlandstindi að mestu leyti meðan við erum að byggja upp lífmassann aftur,“ segir Jens Garðar.

Yfir tvöhundruð manns starfa við laxeldið, flestir í vinnslunni á Djúpavogi. Engum verður þó sagt upp vegna áfallsins.

„Við ætlum bara að standa með fólkinu okkar og finna því önnur verkefni. Og það verður nóg að gera. Það verður þörf fyrir allar hendur á dekk.“

Jens segir aldrei hægt að útiloka að svona sjúkdómur komi upp aftur en reynt verði að lágmarka hættuna með því að setja upp nánast eldveggi á milli svæða.

„Þannig að ef þetta kemur upp á afmörkuðum stað þá eru nánast allar líkur á því að það verði bara þar en muni ekki dreifast um allt.“

Nýir fóðurprammar við bryggju á Reyðarfirði.Sigurjón Ólason

Og miðað við fóðurprammana tvo, sem komu til Reyðarfjarðar á dögunum, nýsmíðaðir frá Víetnam, er ekki að sjá neinn bilbug á fiskeldismönnum. Jens Garðar segir prammana sérútbúna fyrir mikla ölduhæð, allt að tólf metra, þótt slík ölduhæð sjáist þó aldrei inni á fjörðunum. Fjárfestingin er veruleg.

„Þetta slagar hátt í milljarð, hingað komið, þessir tveir, sem náttúrlega bara sýnir bæði uppbygginguna hjá okkur og kraftinn í samfélaginu hérna líka. Það er mikill kraftur í samfélaginu, mikil fjárfesting og mikil uppbygging. Vöntun á fólki, vöntun á húsnæði. Þannig að þetta eru jákvæð viðfangsefni,“ segir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Stað­festa grun um blóð­þorra í Beru­firði

ISA-veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. Grunur um tilvist veirunnar í firðinum vaknaði í lok maí.

Bjartsýni á Djúpavogi með endurreisn Búlandstinds

Viðsnúningur hefur orðið í atvinnumálum á Djúpavogi, íbúum fjölgar og þar ríkir bjartsýni. Störfin í stærsta atvinnufyrirtækinu eru núna orðin fleiri en var fyrir fimm árum þegar tilkynnt var um lokun þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×