Erlent

Rússar hafa nánast lagt Luhansk hérað undir sig

Heimir Már Pétursson skrifar
Það náðist mynd á eftirlitsmyndavél þegar eldflaugin sprakk í verslunarmiðstöðinni.
Það náðist mynd á eftirlitsmyndavél þegar eldflaugin sprakk í verslunarmiðstöðinni. AP/forsetaskrifstofa Úkraínu

Rússar eru við það að ná fullum yfirráðum yfir síðustu borginni í Luhansk héraði eftir harða bardaga undanfarnar vikur. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að útvega Úkraínumönnum þau vopn sem dugi til að þeir vinni stríðið í Úkraínu.

Ættingjar og vinir hafa lagt blóm við rústirnar af verslunarmiðstöðinni til minningar um þá sem féllu.AP/Efrem Lukatsky

Rússar eru við það að ná yfirráðum yfir öllu Luhansk héraði þar sem síðasta vígið er borgin Lysychansk en Úkraínumenn ráða enn yfir um helmingi Donetsk héraðs. Lysychansk er nánast algerlega umkringd Rússum sem mistókst þó að ráðast inn í borgina í gær.

Oleksandr Baybuza er einn fjölmargra sem sakna ástvina eftir sprenginguna í verslunarmiðstöðinni á mánudag. Hann lifir enn í voninni að finna mág sinn á lífi þótt líkurnar séu ekki miklar.AP/Efrem Lukatsky

Sumir binda enn vonir við að finna ástvini sina á lífi, eða að minnsta kosti líkamsleifar þeirra, í rústum verslunarmiðstöðvar sem Rússar sprengdu í loft upp meðeldflaug í Kremenchuk á mánudag. Að minnsta kosti átján óbreyttir borgarar létust, um sextíu særðust og tuttugu er saknað. Oleksandr Baybuza leitar að mági sínum en síðast var vitað af honum við störf í verslunarmiðstöðinni á mánudag.

„Allir vona að hann sé á lífi, að hann sé særður einhvers staðar. Við missum aldrei vonina og bíðum eftir góðum fréttum. Við vonum að hann sé á lífi," segir Baybuza þar sem hann stendur ásamt fleirum sem eiga um sárt að binda við rústirnar. Möguleikarnir að finna einhvern á lífi eru engir.

Vladimir Putin forseti Rússlands sver og sárt við leggur eina ferðina enn að Rússar geri ekki árásir á óbreytta borgara þótt sönnunargögnin blasi við um alla Úkraínu.AP/Alexander Zemlianichenko

Putin Rússlandsforseti heldur hins vegar áfram að þræta fyrir árásir á borgarleg skotmörk þrátt fyrir ógrynni sönnunargagna um hið gagnstæða, bæði í Kremenchuk sem og annars staðar í Úkraínu.

„Rússneski herinn gerir ekki árásir á borgaraleg skotmörk. Við þurfum þess ekki. Við vitum vel um staðsetningu skotmarka og með nákvæmum, langdrægum vopnum hæfum við þau. En auðvitað fæ ég nákvæmari upplýsingar við komuna til Moskvu,“ sagði Putin eftir leiðtogafund ríkja við Kaspíahaf í Turkmenistan í gær.

Liz Truss utanríkisráðherra Bretlands segir að ekki eigi að hlusta á yfirlýsingar Putins heldur mæta honum af fullkominni hörku þannig að Úkraína vinni stríðið.AP/Paul White

Aðildarríki NATO hétu Úkraínumönnum enn frekari hernaðarstuðningi á leiðtogafundi i Madrid í gær. Liz Truss utanríkisráðherra Bretlands segir Breta ætla að auka hernaðaraðstoðina um einn milljarð punda.

„Við þurfum að halda ótrauð áfram, halda áfram að styðja Úkraínu, viðhalda refsiaðgerðunum gagnvart Rússum og hunsa orðræðu Vladimirs Pútíns. Hið eina sem skiptir máli er það sem gerist á vígvellinum,“ sagði Truss í Madrid í dag.


Tengdar fréttir

Putin segir sókn Rússa stöðuga og samkvæmt áætlun

Putin Rússlandsforseti þvertekur fyrir að ráðist sé á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Sókn rússneskra hersveita væri stöðug og gengi samkvæmt áætlun. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að auka stuðning sinn við Úkraínumenn og sjá til þess að þeir gersigri rússneska innrásarliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×