Stóð við sitt og hefur greitt um hálfan milljarð í skatta Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2022 14:00 Hjónin Haraldur Þorleifsson og Margrét Rut Eddudóttir listakona. Aðsend Haraldur Þorleifsson sem seldi fyrirtæki sitt Ueno til Twitter í fyrra samdi við félagið um að stærstur hluti kaupverðsins yrði greiddur með launagreiðslum svo hann gæti greitt skatta af sölunni á Íslandi.
Þetta staðfestir Haraldur í samtali við Viðskiptablaðið en við söluna varð hann starfsmaður Twitter og fær launagreiðslur í gegnum dótturfélag þess í Hollandi. Samkvæmt ársreikningi félagsins voru laun og launatengd gjöld vegna eins starfsmanns á Íslandi rúmlega 1,1 milljarður króna árið 2021. Áætlar Viðskiptablaðið að Haraldur hafi greitt um hálfan milljarð króna af þeirri upphæð í tekjuskatt og launatengd gjöld. Salan á tækni- og hönnunarfyrirtækinu til Twitter vakti mikla athygli og ekki síst yfirlýsingar Haraldar um að hann hafi flutt til Íslands áður en salan gekk í gegn í þeim tilgangi að greiða skatta af sölunni hér á landi. Hann sagðist með þessu vilja styðja við skóla-, heilbrigðis-, og velferðarkerfi sem hafi hjálpað sér og öðru fólki úr lágtekjufjölskyldum að dafna. I asked my wife if we should give up our green card.She was planning to go to school in the US which would not be a possibility if we left.I also explained to her that the taxes were significantly higher.She just said yes, of course and kept doing what she was doing.— Halli (@iamharaldur) January 30, 2021 Unnið fyrir fjölmörg stórfyrirtæki Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það hafi hlaupið á milljörðum króna. Ueno skilaði 730 milljóna króna hagnaði árið 2020 samkvæmt ársreikningi og nam eigið fé 1,48 milljörðum króna. Við kaupin var fyrirtækið með starfstöðvar í Reykjavík, San Francisco, New York og Los Angeles þar sem það starfaði fyrir stórfyrirtæki á borð við Twitter, Apple, Uber, Reuters, Visa, Discovery og Walmart. Rætt var við Harald Þorlefsson í Íslandi í dag í febrúar.
Kaup og sala fyrirtækja Skattar og tollar Tengdar fréttir „Stærsta sorg sem ég hef lent í“ Haraldur Ingi Þorleifsson stofnaði sitt eigið fyrirtæki í stofunni heima hjá sér árið 2014. Hugmyndin var þá að stofna lítið félag utan um þau verkefni sem hann var sjálfur að vinna í lausamennsku sem hönnuður á ýmiskonar vefsíðum, öppum og öðru skjáefni. 17. febrúar 2022 10:32 Vill jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, tilkynnti í dag að hann vilji aðstoða þolendur kynferðisofbeldis við að losna undan trúnaðarsamningum við gerendur. Hann segist vilja jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina. 19. janúar 2022 23:49 Býðst til að leggja inn á fjölskyldur sem hafa lítið milli handanna Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, hyggst láta gott af sér leiða um jólin og aðstoða barnafjölskyldur sem hafa lítið milli handanna. 24. desember 2021 00:52 Nýtir peningana frá Twitter til að opna kaffihús og bíó á uppáhalds staðnum Félagið Unnarstígur ehf., sem er í eigu Haraldar Inga Þorleifssonar, hefur keypt jarðhæðina við Tryggvagötu 11 í Reykjavík. Haraldur er stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno en hann seldi félagið til Twitter um síðustu áramót. Það er því vel við hæfi að hann hafi greint frá fasteignakaupunum á Twitter-síðu sinni í gær. 10. mars 2021 16:28 Twitter kaupir íslenskt fyrirtæki Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur keypt íslenska tækni- og hönnunarfyrirtækið Ueno sem stofnað var árið 2014 og hefur vaxið hratt undanfarin ár. 6. janúar 2021 15:20 Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira
„Stærsta sorg sem ég hef lent í“ Haraldur Ingi Þorleifsson stofnaði sitt eigið fyrirtæki í stofunni heima hjá sér árið 2014. Hugmyndin var þá að stofna lítið félag utan um þau verkefni sem hann var sjálfur að vinna í lausamennsku sem hönnuður á ýmiskonar vefsíðum, öppum og öðru skjáefni. 17. febrúar 2022 10:32
Vill jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, tilkynnti í dag að hann vilji aðstoða þolendur kynferðisofbeldis við að losna undan trúnaðarsamningum við gerendur. Hann segist vilja jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina. 19. janúar 2022 23:49
Býðst til að leggja inn á fjölskyldur sem hafa lítið milli handanna Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, hyggst láta gott af sér leiða um jólin og aðstoða barnafjölskyldur sem hafa lítið milli handanna. 24. desember 2021 00:52
Nýtir peningana frá Twitter til að opna kaffihús og bíó á uppáhalds staðnum Félagið Unnarstígur ehf., sem er í eigu Haraldar Inga Þorleifssonar, hefur keypt jarðhæðina við Tryggvagötu 11 í Reykjavík. Haraldur er stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno en hann seldi félagið til Twitter um síðustu áramót. Það er því vel við hæfi að hann hafi greint frá fasteignakaupunum á Twitter-síðu sinni í gær. 10. mars 2021 16:28
Twitter kaupir íslenskt fyrirtæki Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur keypt íslenska tækni- og hönnunarfyrirtækið Ueno sem stofnað var árið 2014 og hefur vaxið hratt undanfarin ár. 6. janúar 2021 15:20