Lífið

Camilla Rut og Rafn skilja

Elísabet Hanna skrifar
Þau hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að fara í sitthvora áttina.
Þau hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að fara í sitthvora áttina. Instagram/Skjáskot

Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Rafn Hlíðkvist Björg­vins­son hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að skilja eftir þrettán ára samband. Þau tilkynntu skilnaðinn á hugljúfan hátt, saman, á miðli Camillu.

Parið á saman tvo syni og biðja um mildi á þessum tímum breytinga. Brúðkaup fyrrum parsins vakti mikla athygli árið 2017 þegar því var streymt á Facebook. Ákvörðunin um skilnaðinn segjast þau hafa tekið með hamingju þeirra og barnanna að leiðarljósi. Þau töluðu beint til fylgjenda Camillu í myndbandi og virðist ekki vera neitt nema vinátta á milli þeirra:

„Það er komið að leiðarlokum hjá okkur. Byrjum sem bestu vinir og endum sem bestu vinir,“

sögðu þau meðal annars í tilkynningunni. „Við gerum þetta saman, alla leið,“ sögðu þau og segjast hafa átt yndislegan tíma saman en að þau hafi vaxið í sundur. „Við erum full tilhlökkunar að takast á við lífið saman með strákunum okkar en þó í sitthvoru lagi á sama tíma,“ sögðu þau að lokum.


Tengdar fréttir

Fagnar kvenlíkamanum með nýju fatamerki

Áhrifavaldurinn og söngkonan Camilla Rut, betur þekkt sem Camy, var að stofna nýtt vörumerki, Camy Collections. Síðar á árinu kemur svo fyrsta fatalína merkisins á markað hér á landi. 

Camilla og Rafn eignuðust sitt annað barn

Samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut Rúnarsdóttir og eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, eignuðust sitt annað barn á mánudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.