Oddvitaáskorunin: Fór í þrjátíu sekúndna gamlárssund í áratug vegna veðmáls Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2022 17:00 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Jóhannes Loftsson leiðir lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég er verkfræðingur og frumkvöðull með mikla ástríðu fyrir að skilja heiminn og bæta samfélagið í kringum mig. Stærsti vandi íslendinga í dag er að þeir sem hafa hvað mest vald yfir okkur eru að mestu ábyrgðarlausir gagnvart skaðanum sem þeir kunna að valda. Þetta hefur leitt til lífskjaraskerðingar fyrir almenning. Okkar aðalbarráttumál eru: Byggjum ódýrt strax – með því að stórauka lóðaframboð og byggjum land Keldna. Eins villjum við stækka Reykjavík til norðurs með Viðeyjarleið sem sem tengir miðbæinn við Kjalarnes og Gufunes. Bætum flæðið strax - Höfnum dýrum samgöngusáttmála sem verður fjármagnaður með vegsköttum og lóðaverði og förum frekar strax í hagkvæmari framkvæmdir sem bæta flæðið. Eflum samgönguása borgarinnar og tengjum Reykjavík með Viðeyjarleið sem gefur tvöfallt meiri styttingu en Sundabrautin. Eflum Reykjavíkurflugvöll með að nota hann meira með að leyfa meira millilandaflug beint frá Reykjavík. Stöðvum sóunina og forgangsröðum grunnþjónustu og skattalækkanir. Öll framkvæmdarverkefni eiga fara í óháð faglegt mat áður en fjárveiting er gefin, eins og gert er á hinum norðurlöndunum. Eflum dagforeldrkerfið. Kostur dagforeldrakerfisins er að það er mun ódýrar og henta betur yngri börnum. Á norðurlöndunum er það mun öflugra en hér. Með því að efla það er hægt að tryggja öllum börnum vist við hæfi. Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Viðey. Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað? Borgarstjórinn. Þyrftum að fá nýjan borgarstjóra. Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið? Stofna stjórnmálaflokk. Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna? Þegar lögreglan á Húsavík fann veski konu minnar. Veit ekki hvor var hamingjusamari: Konan mín eða þeir þegar þeir sáu gleðiviðbrögð hennar. Hvað færðu þér á pizzu? Allt kjötið. Hvaða lag peppar þig mest? Thunderstruck með ACDC. Hvað getur þú tekið margar armbeygjur? Þarf að svara þessu? Göngutúr eða skokk? Bæði, en ég hleyp maraþon reglulega. Uppáhalds brandari? Bragginn. Hvað er þitt draumafríi? Ferðast um landið með fjölskyldunni. Maður gefur sér alltaf tíma til að uppgötva eitthvað nýtt. Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár? Þau eru á pari, því frelsið var tekið af okkur bæði árin. Uppáhalds tónlistarmaður? Stebbi Hilmars. Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert? Fór með félögunum í 30 sekúndna gamlárssund úti á seltjarnarnesi á hverjum áramótum í rúman áratug eftr að veðmál fór illa. Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur. Dolf Lundgren Hefur þú verið í verbúð? Nei. Áhrifamesta kvikmyndin? Fifth Element. Áttu eftir að sakna Nágranna? Nei… Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara? Seltjarnarnes Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Gleðibankinn.
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjavík Ábyrg framtíð Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira