Lífið

Þurfti kvíðalyf eftir TikTok storminn: „Fólki er ekki gefið svigrúm til að vera mannlegt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Laufey Ebba er mjög vinsæl meðal barna á TikTok.
Laufey Ebba er mjög vinsæl meðal barna á TikTok.

Lóa Björk Björnsdóttir fór af stað með þættina Aðalpersónur á Stöð 2 og Stöð 2+ á dögunum.

Lóa hittir aðalpersónurnar sem internetið hefur fætt af sér og skoðar hvaða áhrif netheimar hafa á raunheima og hvernig mörkin verða sífellt óskýrari.

Í síðasta þætti var fjallað um miðilinn TikTok sem nýtur vinsælda hér á landi.

Ein skærasta TikTok stjarna landsins er Laufey Ebba og er hún mjög vinsæl meðal barna hér á landi. Í síðasta þætti ræddi Laufey meðal annars um þau haturummæli sem hún verður fyrir á miðlinum og einnig um tímabilið þegar fjallað var um hana í íslenskum fjölmiðlum og hún sökuð um dýraníð.

„Ég hélt bara að hún myndi rúlla niður og lenda á fótunum eins og hún gerir allt,“ segir Laufey um myndbandið sem fór í dreifingu en þá var hún í beinni útsendingu á TikTok.

„Hún dettur á hliðina og ég fékk sjokk, en fór að hlægja því maður hlær stundum þegar eitthvað stressandi gerist. Svo tók einhver þetta myndband og klippti það til svo fólk sá bara þegar hún datt og það fór í umferð, harkalega umferð. Ég var kölluð dýraníðingur og ógeðsleg. Ég var bara í spennuástandi í svona fjóra daga eftir þetta en ég held að ég sé búin að jafna mig,“ segir Laufey sem varð að fá uppáskrifa kvíðalyf þegar umræðan stóð sem mest yfir.

„Fólki er ekki gefið svigrúm til að vera mannlegt,“ segir Laufey um þennan heim, að fólk megi aldrei gera nein mistök.

Klippa: Fólki er ekki gefið svigrúm til að vera mannlegt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.