Skyggnast inn í heim hugvíkkandi efna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. apríl 2022 15:47 Karól Kvaran, Kristín Ketilsdóttir og Kolbrún Hallgrímsdóttir feta ótroðnar slóðir í Háskólanum og rannsaka heim hugvíkkandi efna. Aðsend/Guðmann Þór Bjargmundsson Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi.
Þær Karól Kvaran, Kolbrún Hallgrímsdóttir og Kristín Ketilsdóttir eru með alla anga úti og óska eftir þátttakendum í rannsókn sem hverfist um notkun, ástæður og viðhorf til hugvíkkandi efna. Kristín segir að með hugvíkkandi efnum eigi hún við efni á borð við psilocybin, LSD og fleiri. „Þessi hugvíkkandi efni eru ólögleg en það er samt verið að neyta þeirra en það hefur aldrei verið kortlagt áður hvernig notkun þeirra fer fram hér á landi og hver upplifun fólks er af efnunum. Það hefur aðallega verið rannsakað hvað notendurnir eru margir og hvaða efni þeir eru að nota en ofboðslega lítið er vitað um ástæðurnar.“ Þegar Kristín talar um ástæður fyrir notkun á hugvíkkandi efnum er spurningum varpað fram á borð við „Hvernig er unnið með upplifunina?, með hverjum er verið að taka efnin? Er verið að taka þau í einrúmi eða með meðferðaraðila?“ Á síðustu árum hefur orðið bylting innan sálfræðinnar og í geðlækningum þar sem ávinningur þess að nota hugvíkkandi efni sem meðferðarúrræði hefur verið kannaður í auknum mæli. Sjá nánar: Tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum „Það sem er svo ofboðslega áhugavert við þessi efni er að svo virðist sem að fólk sé ekkert endilega að neyta þeirra til afþreyingar heldur sem meðferðarúrræði og það hafa verið gerðar rannsóknir erlendis og þeim hefur farið fjölgandi mjög hratt þar sem verið er að rannsaka þau með meðferðartilgang í huga en þessar rannsóknir hafa ekki verið gerðar á Íslandi.“ Nemar við sálfræðisvið Háskóla Íslands leita að þátttakendum í rannsókn á hugvíkkandi efnum.Aðsend/Guðmann Þór Bjargmundsson Kristín segir að þegar hugvíkkandi efni voru gerð ólögleg hafi fræðisamfélagið að miklu leyti hætt að kortleggja notkun á þeim sem sé mikill missir því vöntun sé á dýrmætri þekkingu um hin hugvíkkandi efni. Kristín kveðst afar þakklát Ragnari Pétri Ólafssyni prófessor fyrir að leiðbeina þeim í verkefninu, ekki síst í ljósi þess að ekki hafi mikið farið fyrir þessu umfjöllunarefni í sálfræðináminu til þessa. „Hann kom sér í samband við þessi stóru nöfn úti í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem búið er að vinna þessi mælitæki og þessa spurningalista þannig að við erum búin að þýða þá að einhverju leyti en svo líka bæta við spurningum sem okkur þykja áhugaverðar.“ Rannsakendurnir hafa opnað facebooksíðu undir yfirskriftinni: Rannsókn um hugvíkkandi efni en þar er að finna tengil á rannsóknina. Kristín hvetur fólk eindregið til þátttöku. „Ekki eingöngu frá einstaklingum sem hafa prófað efnin heldur líka þeim sem hafa ekki gert það og hafa jafnvel litla þekkingu á þeim bara til að gera viðhorfskönnun.“ En hvernig kviknaði áhuginn á þessu umfjöllunarefni? „Þessar rannsóknir sem ég byrjaði að lesa fyrir svona fimm árum kveiktu áhuga minn á sjálfu sálfræðináminu. Ég var alltaf ákveðin í að gera þetta að rannsóknarefninu mínu þegar kæmi að ritgerðinni en ég bjóst ekkert endilega viðað fá leiðbeinanda með mér í lið af því að þetta er efni sem er ennþá á jaðrinum og sérstaklega í háskólanum hér á Íslandi. Það er ekki mikið verið að fjalla um þetta í kennslu. Ég er, aftur, bara ofboðslega þakklát Ragnari fyrir að taka þátt í þessu með okkur.“
Heilsa Geðheilbrigði Hugvíkkandi efni Háskólar Tengdar fréttir Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56 „Vonandi ekki langt í að hægt verði að nota þessi lyf hér á landi“ Sálfræðingur vonar að ekki þurfi að bíða lengi eftir að meðferð með lyfjum sem eru unnin úr ofskynjunarsveppum verði leyfð hér á landi. Þau hafi reynst afar vel við mörgum geðröskunum. Lyfin opni milli heilastöðva þannig að fólk virðist eiga auðveldara með að vinna úr ýmsum sálrænum vanda. 24. maí 2021 15:00 Segir tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og ýmsum fíknisjúkdómum Geðlæknir segir að búast megi við byltingu í geðlækningum á næstu árum með lyfjum sem unnin eru úr svokölluðum ofskynjunarsveppum. Rannsóknir hafi sýnt að þau geti gagnast afar vel við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og fíknisjúkdómum. Hópur sérfræðinga skoði að leita til Lyfjastofnunar og ráðherra til að fá að gera rannsóknir á lyfinu hér á landi. 19. maí 2021 14:45 Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Mette boðar óvænt til kosninga Erlent Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Innlent Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Erlent Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Innlent Vilja borgarlest í stað borgarlínu Innlent Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Innlent Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Innlent Háskólinn lagði stúdenta Innlent Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Innlent Fleiri fréttir Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Gísli Rafn lætur af störfum hjá Rauða krossinum Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Vonbrigði með verðbólgutölurnar og snjómokstur olli tjóni Háskólinn lagði stúdenta Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Vilja borgarlest í stað borgarlínu Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Bein útsending: Þróun og horfur á vinnumarkaði Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Sjá meira
Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56
„Vonandi ekki langt í að hægt verði að nota þessi lyf hér á landi“ Sálfræðingur vonar að ekki þurfi að bíða lengi eftir að meðferð með lyfjum sem eru unnin úr ofskynjunarsveppum verði leyfð hér á landi. Þau hafi reynst afar vel við mörgum geðröskunum. Lyfin opni milli heilastöðva þannig að fólk virðist eiga auðveldara með að vinna úr ýmsum sálrænum vanda. 24. maí 2021 15:00
Segir tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og ýmsum fíknisjúkdómum Geðlæknir segir að búast megi við byltingu í geðlækningum á næstu árum með lyfjum sem unnin eru úr svokölluðum ofskynjunarsveppum. Rannsóknir hafi sýnt að þau geti gagnast afar vel við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og fíknisjúkdómum. Hópur sérfræðinga skoði að leita til Lyfjastofnunar og ráðherra til að fá að gera rannsóknir á lyfinu hér á landi. 19. maí 2021 14:45