Það hefur löngum verið mál manna að það sé í mörgu tilliti hálfvonlaust að ferðast um landsbyggðina með almenningssamgöngum. Vegagerðin - sem útvistar þessari þjónustu til Strætó bs. - áttar sig á vandanum og ætlar nú að taka kerfið til gagngerrar endurskoðunar.
Í fréttatíma kvöldsins var kíkt niður í Mjódd og kannaðir möguleikarnir á Strætó til Akureyrar. Þeir eru ekki ýkja fýsilegir, 28 stopp og sex og hálfs tíma ferðalag á 10.780 krónur.
Sitt sýnist hverjum um það hvort það sé sérstaklega góður díll, segir Halldór Jörgensen, forstöðumaður almenningssamgöngudeildar Vegagerðarinnar. „Það þarf tekjur til að reka kerfið en að sjálfsögðu viljum við fleiri notendur,“ segir Halldór.
Til samanburðar kostar 40 mínútna flug sama dag um 16.000 krónur. Það er að vísu óvenjugott verð, en kannski engin furða að notkun á Strætó á landsbyggðinni hefur dregist verulega saman — á meðan hún eykst í samanburðarlöndum.
„Því miður komum við ekki vel undan Covid, sérstaklega ekki í landssamgöngum. Við sjáum að okkur vantar farþega í Strætó á landsbyggðinni og erum að endurskoða kerfið, hvort við séum á einhverjum stöðum ekki að keyra á réttri tíðni eða réttar leiðir,“ segir Halldór.

Heimakærir höfuðborgarbúar eru að vonum ekki helteknir af þessum þáttum dagsdaglega; en oft vakna þeir við vondan draum þegar þeir þurfa sjálfir út á land. Jón Gnarr, sem hefur unnið í leikhúsi á Akureyri í vetur, er orðinn ötull talsmaður hraðlestar á Íslandi. Hvað segir Vegagerðin við því?
„Ég sé það ekki gerast á mínum líftíma. Það er bara of dýrt,“ segir Halldór Jörgensson.
Ekki allir eru sáttir við það sjónarmið ef marka má samfélagsmiðla:
Sem maður sem ferðast með lest í sirka 4 tíma á hverjum virkum degi er það sönn ánægja að deila með ykkur að lestir eru fokking sick, þær eru langbesti ferðamátinn (not even close) og mér er nákvæmlega sama hvað þær kosta
— Jónas Már (@JTorfason) March 31, 2022
Lestir kosta mjög mikinn pening og skila ekki hagnaði og þess vegna er ég á móti þeim.
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) March 31, 2022
Í ótengdum fréttum þarf að byggja 18 mislæg gatnamót á næstu þremur mánuðum til að greiða fyrir umferðinni sem hin 15 mislægu gatnamótin gerðu svo greiða. Snjallvæðing umferðarljósa og niðurgr
Fyndið að afskrifa lest því þær skila ekki hagnaði. Á sama tíma styðjum við innanlandsflug sem hefur aldrei skilað hagnaði og ríkið borgar undir. Lestarsamgöngur er þjónusta. Grunnstoðir. Eins og menntakerfi. Heilbrigðiskerfi. Skapar heilbrigt og gott samfélag. Það er hagnaður.
— Björn Teitsson (@bjornteits) March 31, 2022
Smá áminning fyrir fólk sem grætur það að ríkisrekin (eða sveitarfélagsrekin) framkvæmd í hag almennings sé dýr: hún mun að öllum líkindum ekki bara nýtast í þau fjögur ár sem kjörtímabil er heldur í tugi ef ekki hundruði ára.
— ✨ Inga Boogie ✨ (@Inga_toff) March 31, 2022
Ísland er svo heimskulega skammsýn þjóð 😬
Flugvöllur í Vatnsmýri er aldrei að fara að borga sig.
— Örn Úlfar Sævarsson 🇺🇦 (@ornulfar) March 31, 2022
Má ekki eyða peningum í neitt sem skilar ekki hagnaði lengur eða?!? https://t.co/kAN3Bcx8q4 pic.twitter.com/acOaCZmwN7
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) March 31, 2022