Notuðu falsaðan dollaraseðil frá Íslandsbanka í Flórída Jakob Bjarnar skrifar 1. apríl 2022 07:01 Pétur Sigurðsson fasteignasali í Flórída hefur heldur betur magnaða sögu að segja af íslenskum hjónum sem fengu seðlabúnt frá Íslandsbanka hvar í leyndist falsaður seðill sem svo hjónin í sakleysi sínu notuðu til greiðslu í Bandaríkjunum. aðsend Íslensk hjón sluppu með skrekkinn en þau notuðu falsaðan seðil sem greiðslu úti í Flórída.
Íslensk hjón, sem nú eru stödd í Ventura sem er í grennd við Orlando í Flórída, sluppu naumlega fyrir horn. Þau dvelja um þessar mundir í vöktuðu hverfi og notuðu grandalaus hundrað dollara seðil til að greiða með fyrir morgunverð þar og svo strikamerki á bíl sinn, til að komast með hægum hætti í gegnum öryggishlið inn í hverfið. Í Bandaríkjunum telst það til alvarlegra brota að nota falsaða seðla en fyrir tilviljun sluppu þau með það. Þau fullyrða að seðilinn hafi þau fengið hjá Íslandsbanka. Pétur nær að kaupa hinn falsaða seðil Pétur Sigurðsson fasteignasali er búsettur á svæðinu og honum tókst að bjarga málum. „Málið er að í Ventura, þar sem ég bý er mikið af Íslendingum. Þeir koma hingað mikið í frí. Ef einhvern vanda ber að höndum þá er gjarnan leitað til mín. Og Gariella Ramos, sem er einskonar bæjarstjóri hér, hringdi í mig og spyr hvort ég þekki leigjendur, Íslendinga, sem eru í tiltekinni íbúð. Ég hélt það nú. Þetta er bróðir eins besta vinar míns á Íslandi. Hef þekkt hann frá 15 ára aldri,“ segir Pétur í samtali við Vísi. Gariella tjáir þá Pétri alvarleg í bragði að þau hjónin hafi notað falsaðan seðil til að greiða fyrir áðurnefnda þjónustu. „Ég náttúrlega, með það sama, hringi í þennan vin minn og spyr hann hvar hann hafi fengið þennan seðil? Og hann segir Íslandsbanka! Ég hljóp yfir á bæjarskrifstofurnar og keypti af Gabriellu seðilinn. Rétti henni löggildan seðil fyrir.“ Seðillinn falsaði líklega úr útibúinu á Ártúnshöfða Hinn ónefndi vinur hans ferðalangurinn kom þá til Péturs sem bauð honum að kaupa seðilinn af sér til baka. Ekkert fer á milli mála að um falsaðan seðil er að ræða, merktur „movie prop use only“. „En hann var samt í búnti frá Íslandsbanka,“ segir Pétur. Vinur hans hefur haft þann hátt á frá í hruni að hafa borð fyrir báru og kaupa sér gjaldeyri og geyma í peningaskáp. Hafa svo með sér reiðufé eftir þörfum á ferðalögum. Maðurinn telur næsta víst að téðan seðil hafi hann keypt á sínum tíma í útibúi Íslandsbanka á Ártúnshöfða fyrir tveimur árum, eða rétt áður en útibúinu því var lokað. „Hann var heppinn að nota þennan seðil hér í hverfinu þar sem þeir þekkja vel til Íslendinga og vilja halda góðum samskiptum við okkur. Þess vegna hringdi Gabriella í mig. En ekki í The US Secret Service eins og henni bar að gera lögum samkvæmt; verndara gjaldmiðilsins,“ segir Pétur. Brá illilega í brún Pétur lýsir því að vitaskuld megi fólk eiga slíka gerviseðla en um leið og menn vilja fara að nota slíkt í verslun og viðskiptum kárnar gamanið. Pétur segir að hjónin hafi í fyrstu farið í mikið uppnám, spurðu hvort þau yrðu handtekin eða rekin úr landi? En málinu lauk þar og þá. Hvað bandarísk yfirvöld varðar. Nú geta þau hlegið að málinu, sloppin með skrekkinn að sögn Péturs sem flutti út til Flórída 15. júní 1998 og lenti klukkan átta. Hefur verið þar síðan og unir vel sínum hag. „Hér er gott að vera.“ Vísi tókst ekki að ná í upplýsingafulltrúa Íslandsbanka til að grennslast nánar fyrir um það hvernig þetta megi vera?
Íslendingar erlendis Bandaríkin Íslenskir bankar Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira