Innlent

Sig­mundi sárnaði glósur og háðs­tónn í um­fjöllun um fjár­kúgunar­málið

Jakob Bjarnar skrifar
Í nýjum hlaðvarpsþætti fjalla þær Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yagi um minnisstæði fréttamál. Fyrsti þátturinn fjallar um einstakt mál, þegar þær Malín Brand og Hlín Einarsdóttir reyndu að kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þá forsætisráðherra. Þær vildu fá átta milljónir króna ellegar yrðu upplýsingar um kaup hans á DV gerð opinber. Þær vissu hvar barn forsætisráðherra væri á leikskóla.
Í nýjum hlaðvarpsþætti fjalla þær Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yagi um minnisstæði fréttamál. Fyrsti þátturinn fjallar um einstakt mál, þegar þær Malín Brand og Hlín Einarsdóttir reyndu að kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þá forsætisráðherra. Þær vildu fá átta milljónir króna ellegar yrðu upplýsingar um kaup hans á DV gerð opinber. Þær vissu hvar barn forsætisráðherra væri á leikskóla.

Sumarið 2015 barst Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þá forsætisráðherra landsins bréf þar sem því var hótað að óþægilegar upplýsingar um hann myndu birtast um hann ef hann borgaði ekki átta milljónir króna.

Sigmundur Davíð tjáir sig í fyrsta skipti um málið sjö árum síðar í viðtali við þær Nadine Guðrúnu Yagi og Þórhildi Þorkelsdóttur í þeirra fyrsta hlaðvarpsþætti sem ber heitið Eftirmál. Þar fer Sigmundur yfir það eins og það horfir við honum og ljóst að honum sárnaði hvernig umfjöllunin var.

„Það sem mér fannst undarlegast eftir þetta voru viðbrögð í umræðunni um þetta mál. Þar sem nánast var gert grín að því að lögreglan hefði tekið þetta svona föstum tökum og farið í allar þessar aðgerðir. Sérstaklega þegar fyrir lá hverjir hefðu staðið að þessu að þessu. Gegnumgangandi fannst mér í umfjöllun að nánast hæðast að þessu. Ég leyfi mér að efast um að sama hefði átt við í öllum tilvikum,“ segir Sigmundur Davíð.

Eitthvert furðulegasta sakamál Íslandssögunnar

Um er að ræða einstakt mál, eitthvert furðulegasta sakamál Íslandssögunnar. Þær Nadine og Þórhildur ræða þær við bæði Sigmund Davíð sjálfan og Jóhannes Þór Skúlason aðstoðarmann Sigmundar á þeim tíma í þættinum. Sem lýsir því sem einhverju því einkennilegasta sem hann hefur lent í. „Topp þrír súrrealískustu atburðir lífs míns.“ Hann segir atburðarásina og málið allt farsakennt.

Þær Þórhildur og Nadine lýsa því hvernig allar fréttastofur landsins fóru á yfirsnúning eftir að Vísir skúbbaði málinu enda um einstakan atburð að ræða og atburðarásin var hröð.

Eftir ævintýralega lögregluaðgerð voru þær systur Malín Brand og Hlín Einarsdóttir handteknar sem þær sem stóð að baki fjárkúguninni. Malín var þá starfandi á Morgunblaðinu og Hlín var ritstjóri Bleikt.is sem var vefmiðill sem fjallaði um skemmtanalíf og tísku; þannig og til þess að gera báðar þekktar.

Hvað höfðu systurnar á Sigmund?

Sigmundur Davíð segir að málið hafi verið alvarlegt. En í bréfinu sem hann barst segir til dæmis að bréfritari eða bréfritarar viti hvar barn hans, þá þriggja ára einkadóttir, sé í leikskóla. Þetta hefur ekki komið fram áður en það var ekki síst vegna þessa atriðis sem lögreglan sá fyllstu ástæðu til að taka málið föstum tökum. 

En Sigmundur Davíð telur hins vegar það skipta máli hver átti í hlut þegar litið er til þess hvaða stefnu umræðan tók og fréttaflutningur, en hann telur sig hafa vissu fyrir því að ýmsir fjölmiðlamenn hafi beinlínis haft horn í síðu sinni, væru ekki sanngjarnir gagnvart sér sumir en hann hafi ekki búist við þessu.

Þórhildur, Sigmundur Davíð og Nadine Guðrún.

„Ef til dæmis núverandi forsætisráðherra hefði lent í slíku. Að þá hefði aðal umfjöllunarefnið verið annars vegar að hæðast að lögreglu fyrir aðgerðir lagði út í og hins vegar, sem var aðalatriðið hjá mörgum, hvað þær hefðu haft á mig? 

Það þótti mest spennandi og þetta þótti mér svekkjandi, og skrítið og óeðlilegt við þessar aðstæður. 

Að umræðan snerist um það hvað þær hefðu á mig sem var þessi kenning að ég hafi keypt DV,“ segir Sigmundur Davíð meðal annars í fróðlegum þætti Eftirmála sem finna má á Tal.

Klippa: Eftirmál - Fjárkúgunarmálið

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×