Hækkandi áburðarverð og landgræðsla – hvað er til ráða? Árni Bragason skrifar 4. febrúar 2022 09:31 Landgræðslunni barst opið bréf frá Ástu F. Flosadóttur sem birt var á Vísi þann 2. febrúar 2022 undir heitinu „Kæri Jón“ Opið bréf til Landgræðslunnar. Tilefni skrifa Ástu eru viðbrögð við bréfi Landgræðslunnar þar sem tilkynnt er að styrkir til verkefnisins Bændur græða landið verði lækkaðir vegna 100% hækkunar áburðarverðs. Ásta fer fögrum orðum um verkefnið Bændur græða landið og segir m.a. „Og árangurinn ótvíræður, melar gróa, rofabörðum er lokað, afréttir bera meiri beit.“ Stór hluti að vinnu við endurheimt vistkerfa á Íslandi byggir á því að grípa inn í þá ferla sem eru hamlandi fyrir framgang þeirra. Í hnignuðum eða hrundum vistkerfum er lítið framboð af næringarefnum, og þá sérstaklega köfnunarefnis og fosfórs, eitt af þeim atriðum sem geta hamlað framvindu hvað mest. Aðrir þættir geta t.d. verið fræframboð, veðurfar, ósjálfbær landnýting og náttúruvá. Stærstu verkefni Landgræðslunnar sem hafa endurheimt vistkerfa að meginmarkmiði eru Bændur græða landið, Landbótasjóður, Umsjón landgræðslusvæða auk endurheimtar votlendis og birkiskóga. Verkefnið Bændur græða landið er samvinnuverkefni Landgræðslunnar og landeigenda um uppgræðslu heimalanda. Tilgangur þess er að styrkja landeigendur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og gera það nothæft á ný til landbúnaðar eða annarra nota. Verkefnið hófst árið 1990. Landbótasjóður er sjóður á vegum Landgræðslunnar sem leggur honum til fé til úthlutunar, auk þess sem aðrir aðilar geta lagt sjóðnum til fjármuni. Landgræðslan úthlutar árlega styrkjum úr sjóðnum, en tilgangur þeirra er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð og veita landeigendum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands, styrki til landbótaverkefna. Verkefnin Bændur græða landið (BGL) og Landbótasjóður (LBS) eru hátt í 600 talsins, flest unnin af sauðfjárbændum. Algengasta aðgerðin í þessum verkefnum er styrking gróðurs með tilbúnum áburði því auðveldara er að koma honum á erfitt land. Svæðin sem unnið er á, eru ýmist friðuð eða nýtt til hóflegrar beitar þannig að svæðin styrkjast og batna sem beitilönd. Ávinningur landgræðslu er margþættur s.s. endurheimt náttúrulegra vistkerfa, aukinn gróður sem bindur kolefni í jarðvegi, styrking líffræðilegs fjölbreytileika, bættur vatnsbúskapur og auknir nýtingarmöguleikar landsins til framtíðar. Nú liggur fyrir að frá árinu 2021 hefur verð á algengum áburðartegundum til landgræðslu hækkað um 102-115% eftir söluaðilum sem er verðbreyting án fordæma hér á landi, auk þess sem framboð er takmarkað. Framlag ríkisins til verkefna Landgræðslunnar hefur hækkað á undanförnum árum og er það vel. Hins vegar er staðan þannig að sú hækkun heldur ekki í við þessa miklu hækkun á áburði. Verð á tilbúnum áburði hefur mikil áhrif á umfang verkefna Landgræðslunnar og samstarfsaðila. Vegna slæmrar stöðu sauðfjárræktarinnar er bagalegt að geta ekki haldið óbreyttu umfangi í þessum miklivægu samstarfsverkefnum sem skilað hafa frábærum árangri á undanförnum áratugum. Landgræðslan hefur ákveðið að grípa til mótvægisaðgerða til að draga úr áhrifum áburðarverðshækkana á helstu verkefni. Landgræðslan eykur áherslu á notkun lífræns áburðar í öllum verkefnum og vekur sérstaka athygli á lífrænni leið í BGL sem gæti verið valmöguleiki fyrir þá þátttakendur sem hafa aðgang að lífrænum áburði. Landgræðslan færir fjármuni úr öðrum verkefnum til verkefnanna BGL og LBS en sú aukning í framlögum nær þó ekki að halda í við verðhækkanir og því hækkar endurgreiðsla á hvert tonn í BGL aðeins um 80% á milli ára. Landgræðslan mun einnig notað minna magn áburðarefna á flatareiningu í nokkrum stærri verkefnum. Þannig má auka það flatarmál sem næst að vinna á og styrkja svæði sem annars hefði ekki verið hægt að fylgja eftir. Árlegt heildarumfang aðgerða í landgræðsluverkefnum er um 20 þúsund hektarar og með því að nota 10% minni áburð á hvern hektara má vinna á 2.000 hekturum til viðbótar. Þessi listi yfir mótvægisaðgerðir er ekki tæmandi og Landgræðslan hvetur samstarfsaðila til að hafa samand við héraðsfulltrúa stofnunarinnar um ráðgjöf og vinna tillögur að lausnum sem henta hverjum og einum til að draga sem mest úr högginu. Að lokum, ágæta Ásta, tel ég rétt að svara tvennu í greininni þinni: Í fyrsta lagi fullyrðingu um að ekkert samráð hafi verið við bændur um vinnslu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu. Reglugerðardrögin voru rædd á fjölmörgum fundum með Landsamtökum sauðfjárbænda og Bændasamtaka Íslands auk þess sem drögin fóru í Samráðsgátt. Nú er unnið að endurbótum vegna athugasemda og drögin munu fara aftur í Samráðsgáttina. Samráðsgáttin er góð leið til að ná til allra landsmanna. Við erum öll, allir landsmenn gæslumenn lands á Íslandi. Í öðru lagi eftirfarandi texti í grein þinni. „Við héldum að sambandið einkenndist af samvinnu og gagnkvæmri virðingu. En svo fara að renna á bóndann tvær grímur, er jafnræði í þessu sambandi? Jöfn og sanngjörn verkaskipting? Kostnaðarskipting rétt? Eru störf bænda og framlag í sambandinu metin að verðleikum? Eða er makkerinn farinn að taka okkur sem sjálfsögðum hlut, má bjóða bændum hvað sem er? Erum við stödd í einhverskonar ofbeldissambandi, þrælahaldi, þar sem þarfir okkar eru ekki virtar, vaðið er yfir okkur á skítugum skónum, talað niður til okkar?“ Verkefnið Bændur græða landið er samstarfsverkefni þar sem hlutverk Landgræðslunnar er að veita ráðgjöf og styrki í samræmi við þær reglur sem settar eru hverju sinni og fram koma í auglýsingu. Við skráum aðgerðir og leggjum mat á hvort styrkir hafi verið nýttir eins og til stóð. Landeigendur sækja um að vera með í BGL, enginn er neyddur til að taka við styrk til að bæta eigið land og gera það betra. Ég er sammála því sem fram kemur í grein þinni – árangur verkefnanna er ótvíræður og ég vona svo sannarlega að þið og aðrir góðir BGL bændur sjái sér hag í að halda áfram að bæta landið okkar, slíkt er samfélagi okkar og framtíð þess til góða Höfundur er landgræðslustjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skógrækt og landgræðsla Mest lesið Halldór 25.04.2026 Halldór Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Sterkari stuðningur við börn í grunnskólum Kópavogs Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Ungt fólk þarf að vita hvar bjargræðin liggja Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar Skoðun Ábyrgðarmörk og vinnufriður þegar pólitík mætir fagmennsku Andrés Bertelsen skrifar Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Læknisþjónusta á ferðalögum Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar Skoðun Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir,Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar
Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar
Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar
Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun