Guðlaug Arnþrúður, Guðrún Anny og Hjalti til Landsbankans Atli Ísleifsson skrifar 21. desember 2021 10:34 Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir, Guðrún Anny Hálfdánardóttir og Hjalti Harðarson. Landsbankinn Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir, Guðrún Anny Hálfdánardóttir og Hjalti Harðarson hafa öll verið ráðin í stjórnendastöður hjá Landsbankanum.
Í tilkynningu segir að þau hafi verið ráðin inn á svið áhættustýringar, eignastýringar og miðlunar og í markaðsdeild bankans. „Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir (Adda) hefur tekið við starfi forstöðumanns Viðskiptalausna hjá Eignastýringu og miðlun. Adda hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2011, síðast sem sérfræðingur hjá Viðskiptalausnum á Einstaklingssviði en áður starfaði hún sem sérfræðingur í rekstraráhættu. Hún hefur töluverða reynslu af þróun og rekstri á þjónustu bankans og hefur leitt umfangsmikil sjálfsafgreiðsluverkefni fyrir Landsbankann, s.s. innleiðingu á Apple Pay og Sparað í appi. Adda er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og er að ljúka prófi í verðbréfaviðskiptum frá sama skóla. Forstöðumaður Markaðsáhættu Guðrún Anny Hálfdánardóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns Markaðsáhættu sem tilheyrir Áhættustýringu bankans. Guðrún hefur unnið hjá bankanum frá árinu 2007 en var áður hjá Kaupþingi frá 2005. Hún var sérfræðingur hjá Áhættustýringu frá 2007-2019, fyrst í eigna- og skuldaáhættu og síðar markaðsáhættu. Árið 2019 starfaði hún hjá Viðskiptalausnum á Einstaklingssviði við framþróun og sjálfvirknivæðingu, m.a. við innleiðingu á Aukalánum. Guðrún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptagreind frá sama skóla, sem og próf í verðbréfaviðskiptum. Forstöðumaður Markaðsdeildar Hjalti Harðarson hefur verið ráðinn forstöðumaður Markaðsdeildar Landsbankans en hann hefur 15 ára reynslu af markaðsmálum og þróun í stafrænu umhverfi. Undanfarið hefur Hjalti starfað sem teymisstjóri stafrænnar grósku í markaðsdeild Arion banka en þar leiddi hann m.a. vinnu við gagnadrifna markaðssetningu. Áður var hann markaðsstjóri Öskju, markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofunni Sahara, framkvæmdastjóri Kjarnans miðla og deildarstjóri hjá Símanum. Hjalti er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar (CBS) og M.Sc. gráðu frá sama skóla í alþjóðamarkaðssetningu og stjórnun,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Íslenskir bankar Mest lesið Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira