Myrti eiginkonu sína með því að keyra yfir hana Árni Sæberg skrifar 11. desember 2021 14:50 David og Stephanie Turtle fyrir voðaverkið. Facebook David Turtle, fyrrverandi sveitarstjórnarmaður frá Bournemouth á Englandi, hefur verið fundinn sekur fyrir frönskum dómstól um að hafa myrt eiginkonu sína. Morðvopnið var Mercedes Benz bifreið hans.
David Turtle, fyrrverandi bílasali og sveitarstjórnarmaður, og eiginkona hans Stephanie ráku saman gistiheimili í Suðvesturhluta Frakkland. Árið 2017 lést Stephanie í því sem David vildi meina að væri bílslys. „Guð minn góður, ég er búinn að drepa konuna mína, held ég. Það var slys,“ sagði David við nágranna sína í símtali klukkan hálf tvö nóttina örlagaríku. Jayne Clarke annar nágrannanna sagði rannsakendum að Turtle hefði verið í miklu uppnámi þegar hann hringdi. Turtle sagði rannsakendum að þau Stephanie hefðu rifist eftir kvöldmat og að hún hefði farið snemma að sofa. Síðan hafi rifrildið haldið áfram þegar hún ætlaði á salernið. Þá hafi hann ákveðið að fara í bíltúr til að róa sig niður. Hann segist ekki hafa tekið eftir því að hafa keyrt á eiginkonu sína þegar hann tók af stað en hann hafi þó „fundið á sér að hann ætti að stöðva bílinn.“ Stephanie hafði hlotið banvæna áverka á bringu og innyfli í árekstrinum. Að sögn The Guardian taldi dómurinn í Agen að ómögulegt væri að David Turtle hafi ekki séð konu sína þegar hann keyrði yfir hana. Því var hann dæmdur í fjórtán ára fangelsi.
Bretland Frakkland Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira