Endurskoða þurfi prófafyrirkomulag í Covid fyrir næsta misseri Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. desember 2021 20:46 Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs HÍ. Vísir/arnar Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að endurskoða þurfi fyrirkomulag staðprófa í háskólanum á tímum heimsfaraldurs eftir að upp kom smit í prófi við HÍ.
Greint var frá því í gær að stúdentinn Sandra Ósk Jóhannsdóttir hafi deilt prófstofu með Covid-sýktum samnemanda þann 2. desember síðastliðinn. Sagðist Sandra í samtali við fréttastofu óttast að hún hafi útsett föður sinn, sem er í áhættuhópi, fyrir smiti en hún var ekki send í sóttkví þrátt fyrir að hafa deilt lítilli stofu með aðeins sex öðrum. Stúdentar við háskólann hafa frá upphafi faraldursins barist fyrir því að fá að taka heimapróf af sóttvarnaástæðum. Helstu rök Háskóla Íslands gegn því hafa hingað til verið þau að enginn hafi hingað til greinst smitaður af Covid í prófatíð við háskólans. Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) segir þessi rök varla eiga við lengur. „Stefna Háskóla Íslands hefur verið frá upphafi þessa faraldurs að bjóða upp á rafræna kennslu með möguleika á staðnámi í samræmi við tilmæli heilbrigðisyfirvalda hverju sinni. Þetta er alveg mikilvægur punktur í umræðuna því að fyrir ári vorum við að fást við þessar reglugerðir um takmarkanir á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða sem veittu skólunum heimild til að halda í það fyrirkomulag sem að þau voru þegar búin að ákveða,“ segir Isabel í samtali við fréttastofu. Snúist um jafnrétti stúdenta til náms Hún segir núverandi sóttvarnaaðgerðir hafa gert það að verkum að háskólinn hafi getað háttað fyrirkomulagi áfram eins og hann vildi. Hún segir þetta þó grundvallaratriði í jafnrétti allra til náms þar sem ekki allir geti þreytt staðpróf. „Þetta snýr að jafnrétti stúdenta til náms því það eru stúdentar sem búa við mjög ólíkar aðstæður og er mjög fjölbreyttur hópur og það eru ekki allir sem sjá sér fært að mæta hér í próf. Og það er örugglega einhver hópur sem hefur ekki stigið fæti hér inn til að taka próf,“ segir Isabel. Fram kemur í skriflegu svari frá Róberti H. Haraldssyni, kennslustjóra HÍ, við fyrirspurn fréttastofu um málið að stúdentum, sem séu í áhættuhópi eða búi við sérstakar aðstæður, standi til boða að þreyta próf í svokölluðu fárými, þar sem fáir séu samankomnir. „Höfum við auglýst það úrræði vel innan Háskólans. Með slíku úrræði er hægt að lágmarka enn frekar hættuna á smiti,“ segir í svari Róberts, en Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, var ekki til viðtals í dag þegar fréttastofa óskaði eftir því. Á borði fræðasviða að ákveða fyrirkomulag prófa í lokin „Í öllu starfi HÍ fylgjum við kröfum heilbrigðisyfirvalda til hins ítrasta á tímum heimsfaraldurs. Á það við um framkvæmd staðprófa, sem og um annað skólahald. Við höfum einsett okkur að hafa skólahaldið sem eðlilegast innan þess ramma sem tilmæli heilbrigðisyfirvalda hverju sinni leyfa,“ segir í svari Róberts. „Í Háskóla Íslands eru fjölmargar námsgreinar og er námsmat töluvert ólíkt eftir deildum og fræðasviðum. Í mörgum tilvikum er það mat deilda og fræðasviða að staðpróf séu nauðsynleg til að tryggja gæði námsmatsins,“ skrifar Róbert. „Vert er að taka fram að fjölmörg heimapróf eru haldin við Háskóla Íslands en í mörgum öðrum tilvikum er það mat deild, eins og áður sagði, að halda verði próf á staðnum vegna öryggis- og gæðasjónarmiða.“ Einn hefur nú greinst smitaður af Covid í prófatíð í HÍ. Vísir/Vilhelm Isabel segir háskólann hljóta að þurfa að meta þetta að nýju, nú þegar smit hafi komið upp í prófstofu. „Háskólinn hefur talið sig hingað til vera að gera það sem í hans valdi stendur til að tryggja sóttvarnir, og leggja líka bara áherslu á einstaklingssóttvarnir, en okkar áhyggjur hafa snúið að því að með þessu móti er verið að safna saman hópi fólks sem er yfirleitt ekki í kring um hvort annað og það verður mikill umgangur í þessum byggingum og á milli stofa. Þetta er einmitt fólk sem er í áhættuhópum eða umgengst fólk með undirliggjandi sjúkdóma.“ Rök háskólans eigi ekki lengur við „Hingað til hefur ekkert smit komið upp í prófatíð í Háskóla Íslands. Það er það sem háskólinn hefur verið að segja og það eru mótrökin sem við höfum verið að fá. Við þurfum að skoða þetta tiltekna mál og eiga samtal um núverandi fyrirkomulag kennslu og prófa,“ segir Isabel. „Við höfðum áhyggjur af því að þetta myndi gerast þó reynt væri að fremsta megni að gæta sóttvarna og öryggis. Það er bara svo erfitt að sjá fyrir útkomuna á þessu öllu. En þar sem það hefur núna gerst, samkvæmt mínum skilningi, þá horfir staðan öðruvísi við.“ „Ég tel það ljóst að það þurfi að endurskoða þetta fyrir næsta misseri, eða alla vega þessi rök að þetta sé allt í góðu lagi og reynsla komin á þetta og ekkert smit komið upp. Það á ekki lengur við,“ segir Isabel. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra, sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í dag að við hlytum að vera komin á þann stað í faraldrinum að geta farið að sjá fram á eðlilegra líf og aukna þátttöku í hefðbundnu skólastarfi. Það væri svo önnur umræða almennt hvort auka ætti fjarnám við háskólana. Klippa: Áslaug Arna um heimapróf í HÍ
Háskólar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Hagsmunir stúdenta Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Sjá meira