Erlent

Naval­ní hlýtur Sak­harov-verðla­unin

Þorgils Jónsson skrifar
Andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag Sakharov-verðlaunin fyrir framlag sitt til umbóta á stjórnmálasviði Rússlands, og andstöðu við Pútín forseta. Verðlaunin veitir Evrópuþingið ár hvert, en Navalní getur ekki veitt þeim viðtöku í bili þar sem hann afplánar nú tveggja ára dóm í fangabúðum í heimalandi sínu.
Andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag Sakharov-verðlaunin fyrir framlag sitt til umbóta á stjórnmálasviði Rússlands, og andstöðu við Pútín forseta. Verðlaunin veitir Evrópuþingið ár hvert, en Navalní getur ekki veitt þeim viðtöku í bili þar sem hann afplánar nú tveggja ára dóm í fangabúðum í heimalandi sínu.

Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum.

Verðlaunin eru ein þau virtustu á sviði mannréttinda og eru kennd við sovéska mannréttindafrömuðinn Andrei Sakharov.

Navalní á ekki hægt um vik með að veita verðlaununum viðtöku þar sem hann afplánar nú tveggja ára fangelsisdóm í fangabúðum í heimalandi sínu.

Síðasta áratuginn eða svo hefur Navalní staðið í fylkingarbrjósti andstöðu gegn Vladimir Pútín Rússlandsforseta og oft mátt gjalda fyrir. Navalní hefur meðal annars sakað stjórnvöld um að hafa reynt að ráða sig af dögum, en hann lifði naumlega af þegar var eitrað fyrir honum með taugaeitri á síðasta ári.

Navalní hefur reynst Pútín Rússlandsforseta óþægur ljár í þúfu og varpað ljósi á margskonar spillingarmál sem tengjast forsetanum og aðilum nátengdum honum. Hann hefur mátt sæta ofsóknum af hendi stjórnvalda og lifði naumlega af morðtilræði á síðasta ári þegar eitrað var fyrir honum.

David Sassoli, forseti Evrópuþingsins, skrifaði af þessu tilefni á Twitter að Navalní hafi „barist ötullega gegn hinni spilltu stjórn Vladimir Pútíns.“

„Fyrir það hefur hann goldið með frelsi, og næstum lífi sínu“, segir hann og bætir við.

„Þessi verðlaun eru viðurkenning á hugrekki hans og við ítrekum kröfu okkar um að honum verði sleppt úr haldi umsvifalaust.“

Meðal fyrri handhafa Sakharov-verðlaunanna eru Nelson Mandela, Malala Júsafsaí og andófsfólk í Hvítrússlandi. 


Tengdar fréttir

Skerða frelsi læknis sem aðstoði Navalní

Rússneskur dómstóll skerti verulega ferðafrelsi læknis sem annaðist Alexei Navalní eftir að sterkum efnum var skvett í augað á honum árið 2017 og hefur stutt við bakið á honum. Anastasia Vasilyeva var dæmd fyrir að brjóta gegn sóttvarnarreglum með því að hvetja fólk til að taka þátt í mótmælum gegn fangelsun Navalnís fyrr á þessu ári.

Saka Navalní um að ætla sér ofbeldisfulla valdatöku

Ráðamenn í Rússlandi hafa opnað enn eitt dómsmálið gegn stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Að þessu sinni er hann sakaður um að stofna öfgasamtök og gæti fangelsisdómur hans lengst um áratug.

Navalní hvetur Rússa til að kjósa af kænsku

Rússar ættu að kjósa af kænsku í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði til þess að losa tangarhald Sameinaðs Rússlands á rússneskum stjórnmálum. Þetta segir Alexei Navalní, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar.

Sam­tök Naval­nís lýst ó­lög­leg öfga­sam­tök

Borgardómstóll í Moskvu féllst í dag á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga í Rússlandi, ólögleg öfgasamtök. Það hefur það í för með sér að meðlimir samtakanna mega ekki bjóða sig fram í þingkosningum í landinu í september.

Bandamenn Navalní handteknir í aðdraganda mótmæla

Rússneska lögreglan handtók Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, og fleiri bandamenn hans í dag. Handtökurnar eru taldar tengjast mótmælum sem boðað hefur verið til um allt landið til stuðnings Navalní sem dúsir í fangelsi við slæma heilsu.

Navalní í hungurverkfall í fangelsinu

Alexei Navalní, einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, hóf hungurverkfall til að þrýsta á fangelsisyfirvöld að sjá honum fyrir læknisaðstoð. Hann er sagður þjást af bráðum verkjum í baki og fótleggjum.

Naval­ní fluttur í fanga­búðir: „Þær eru hræði­legar“

Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur í fangabúðir rétt fyrir utan Moskvu þar sem hann á að sitja af sér tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Navalní var fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu á fimmtudag og var aðstandendum hans ekki gert viðvart um tilfærslu hans.

Áfrýjun Navalnís hafnað

Áfrýjunardómstóll í Moskvu hefur hafnað áfrýjun Alexei Navalní varðandi fangelsisdóms sem hann hlaut nýverið. Stjórnarandstæðingurinn rússneski verður mögulega sendur til fanganýlendu í dag.

Pútín ekki hræddur við Navalní

Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir að forsetinn óttist ekki stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní, sem var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald í gær. Þá þykir líklegt að yfirvöld Rússlands muni koma í veg fyrir áætluð mótmæli vegna handtöku Navalní um helgina.

Navalní handtekinn við komuna til Rússlands

Alexei Navalní hefur verið handtekinn en hann sneri aftur til Rússlands í dag í fyrsta skipti eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu Novichok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×