Nefndarfólk fundaði á hótel Borgarnesi í dag þar sem atkvæði voru talin og endurtalning fór fram í Norðvesturkjördæmi eftir alþingiskosningarnar hinn 25. september.Tólf kærur hafa borist vegna kosninganna sem flestar snúa að meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.
Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar segir nefndarfólk hafa kynnt sér aðstæður á hótel Borgarnesi í dag.
„Við höfum auðvitað fengið lýsingar á staðháttum en hins vegar er svolítið öðruvísi að sjá þetta með eigin augum. Við erum enn að afla gagna fyrir okkar vinnu og munum halda því áfram þessa viku. Við erum að fylla inn í myndina til að reyna að átta okkur á því hver atburðarrásin var varðandi þau mál sérstaklega sem margar kærurnar sem hafa borist okkur beinast að,“ segir Birgir.