Innlent

Björgunar­sveitar­fólk á tánum vegna hvellsins í kvöld

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Björgunarsveitir eru komnar í vetragírinn. Myndin er úr safni. 
Björgunarsveitir eru komnar í vetragírinn. Myndin er úr safni.  Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag á suðurströndinni og á Vestfjörðum en búast má við nokkrum hvelli í kvöld. Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar að þau séu komin í veturgírinn.

Fyrstu viðvaranir taka gildi klukkan 14 á Suðurlandi en viðvaranir verða í gildi fram á nótt á suðurströndinni. Á Vestfjörðum verður í gildi gul viðvörun fram til hádegis á morgun. Snjó festi víða á Suður- og Vesturlandi í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofu mun vinstyrkur ná allt að 25 metrum á sekúndu að jafnaði á suðurströndinni og því ekki ólíklegt að einhverjar truflanir verði á samgöngum. Á Vestfjörðum verður aðeins minni vindur en gert er ráð fyrir hríð á svæðinu.

Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir tilbúna fyrir daginn.

„Staðan er eiginlega bara þannig hjá björgunarsveitum í dag að við erum eins og alltaf með björgunarsveitir hringinn í kringum landið sem eru klárar til að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Við höfum nú fengið tvær hressilegar haustlægðir hingað til þannig að flestar sveitir eru komnar alveg í gírinn fyrir veturinn og búnir að gíra sig svona upp vetraraðstæður,“ segir Davíð.

Björgunarsveitir eru ekki með sérstakan viðbúnað í dag vegna veðurs en Davíð segir björgunarsveitarmenn alltaf vera á tánum og sveitirnar tilbúnar ef kallið kemur. Þá segir Davíð að það sé mikilvægt að fólk fari varlega þegar viðvaranir sem þessar eru í gildi.

„Nú eru veðurfræðingar að vara við því að það gæti snjóað á fjallvegum þannig það er bara mjög mikilvægt að fólk hafi það í huga að vera ekki á van búnum bílum á ferðalagi á einhverjum vegum þar sem er annað hvort hætta á miklum hviðum eða hreinlega bara ófært,“ segir Davíð.

„Þannig ég hvet alla til að fylgast bara vel með veðurupplýsingum og upplýsingum um færð á vegum áður en þeir halda í einhver ferðalög, eða hinkri bara á meðan veðrið gengur yfir,“ segir Davíð Már.

Seinni partinn á morgun er síðan gert ráð fyrir öðrum hvelli á Vestfjörðum og Breiðafirði og verða gular viðvaranir í gildi fram til þriðjudagsmorguns.

Þá verður tekin ákvörðun síðdegis í dag um hvort rýma eigi hús á Seyðisfirði í ljósi úrkomu og skriðuhættu.


Tengdar fréttir

Snjó festi víða í nótt

Fólk sem var snemma á ferð í morgun þurfti líklega að skafa af bílum sínum þar sem snjó festi á Suður- og Vesturlandi, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu.

Víða gular viðvaranir á landinu

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu var eflaust brugðið í morgun en snjór hafði fallið víðsvegar fallið í efri byggðum borgarinnar. Veður verður með verra móti í dag en gular viðvaranir hafa verið gefnar út í fjórum landshlutum.

Vara við hvassviðri og stormi á morgun

Búast má við hvassviðri eða stormi víða á landinu á morgun og hefur Veðurstofan gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðausturlandi og Vestfjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×