Lífið

Steindi rifjar upp Pox-æði tíunda ára­tugarins

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Steindi kynnti leikinn Pox fyrir áhorfendum Blökastsins í síðustu viku. Sjálfur lenti hann ásamt vinum sínum í þriðja sæti á Íslandsmeistaramótinu í Poxi á sínum tíma. Eða það minnir hann allavega.
Steindi kynnti leikinn Pox fyrir áhorfendum Blökastsins í síðustu viku. Sjálfur lenti hann ásamt vinum sínum í þriðja sæti á Íslandsmeistaramótinu í Poxi á sínum tíma. Eða það minnir hann allavega. Blökastið

Í þætti síðustu viku af Blökastinu bauð Steindi Jr. upp á dagskrárliðinn Hoarder hornið. Þátturinn var í mynd og sýndi Steindi þeim Audda og Agli Pox-safnið sitt og kynnti leikinn fyrir áhorfendum.

Steindi er með mikla söfnunaráráttu og segist hann eiga erfitt með að losa sig við dót úr geymslunni. Hann á því dágott safn af svokölluðum Pox-myndum sem inniheldur meðal annars myndir af Tryggva Guðmundssyni, Daníel Ágústi og Magga Scheving.

„Það er fullt af fólki sem veit ekki hvað þetta er,“ segir Steindi og viðurkennir Auddi að hann sé einn af þeim.

Steindi útskýrir því að hér sé um að ræða eins konar spil sem snýst um að skora á aðra Pox-spilara og eiga þannig tækifæri á því að geta eignast Pox-myndir hins spilarans.

„Þú varst að labba í götunni þinni og bara „Hey Árni, viltu poxa?“ Þetta var smá attitude og þú varst með pox-boxið svona hangandi í beltinu og þá opnaðirðu boxið, settir út og þið poxuðuð. Þetta fór stundum þannig að fólk grét sko,“ útskýrir Steindi.

Þeir saklausu voru að poxa

Samkvæmt Steinda var Pox mikið æði þegar hann var ungur en þeir Auddi og Egill kannast ekki við það. Steindi segist hafa poxað mikið í kringum árið 1998.

„Þá var ég bara að rúnta á Hyundai Coupe á Króknum með stelpur aftur í sko,“ segir Auddi og Egill tekur undir það: „Já við vorum í sleik á meðan hann var að poxa.“

Hér fyrir ofan má sjá Hoarder horn Steinda þar sem hann útskýrir einnig svokallað Poison-bragð sem nota má til þess að klekkja á mótspilaranum. 

Steindi á verulega erfitt með að henda hlutum og draslhrúgan stækkar í geymslunni með hverju árinu. Dagskrárliðurinn snýst um að Steindi kemur með allskyns dót að heiman, gamlar tölvur, körfuboltamyndir, Garbage Pail Kids myndir eða bara skrýtnar styttur.


Blökastið er áskriftarhlaðvarp með Audda, Steinda og Agli úr útvarpsþættinum FM95BLÖ. Nýir þættir koma út á hverjum þriðjudegi, ásamt skemmtilegu aukaefni eins og reglulegum sjónvarpsþáttum. Nánar á FM95BLO.is.


Tengdar fréttir

Sóli Hólm hringdi í kjósendur sem Sigmundur Davíð

Sóli Hólm og Máni eru gestir í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Blökastið. Sóli Hólm er nýlega farinn af stað með nýtt eftirhermuuppistand og því var við hæfi að fá hann til þess að taka eitt símaat.

Neyddu Steinda í Covid-19 heimapróf í miðjum þætti

Það er Tenerife þema í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu BLÖKASTIÐ sem kemur út í dag. Þáttur vikunnar er í mynd og fá áhorfendur meðal annars að fylgjast með Steinda Jr. í Covid-19 sýnatöku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.