Keflavík og Valur byrja tímabilið á sigrum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. október 2021 21:20 Ameryst Alston var mögnuð í kvöld. Vísir/Bára Dröfn Íslandsmeistarar Vals og Keflavík byrja tímabilið í Subway-deild kvenna á nokkuð öruggum sigrum. Valur vann stórsigur á Grindavík, 94-69, á meðan Keflavík vann Skallagrím, 80-66.
Valur heimsótti Grindavík og átti ekki í miklum vandræðum. Frábær frammistaða í þriðja leikhluta lagði grunninn að 25 stiga sigri Íslandsmeistaranna, lokatölur 94-69. Ameryst Alston fór hamförum í liði Vals en hún endaði með þrefalda tvennu. Skoraði hún 32 stig, tók 15 fráköst ásamt því að gefa 13 stoðsendingar. Þar á eftir kom Dagbjört Dögg Karlsdóttir með 23 stig ásamt því að taka sjö fráköst. Hjá Grindavík var Robbi Ryan stigahæst með 24 stig. Í Keflavík var Skallagrímur í heimsókn og þar var þriðji leikhluti einnig sá sem gerði endanlega út um leikinn. Staðan hafði verið 42-35 í hálfleik en Keflavík vann þriðja leikhluta með tíu stiga mun og fór langleiðina með að tryggja sigur kvöldsins, lokatölur 80-66. Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur með 21 stig ásamt því að taka sex fráköst og gefa sex stoðsendingar. Eygló Kristín Óskarsdóttir kom þar á eftir með 16 stig ásamt því að gefa sjö stoðsendingar. Nikola Nedoroščíková var stigahæst í liði Skallagríms með 22 stig. Þar á eftir kom Mammusu Secka með 15 stig en hún tók einnig 14 fráköst.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Subway-deild kvenna Valur Keflavík ÍF Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Sjá meira