Innlent

37 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
BE3A5892
Vísir/Vilhelm

Alls greindust 37 með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst á einum degi síðan 8. september. Fjórtán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 38 prósent. 23 voru utan sóttkvíar, eða 62 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

Alls eru nú 349 í einangrun, en voru 336 í gær. 633 eru nú í sóttkví, en voru 773 í gær. 353 eru nú í skimunarsóttkví.

Greint var frá því í morgun að tíu manns hafi greinst með kórónuveiruna á Reyðarfirði í gær.

Sex eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Tveir eru á gjörgæslu, líkt og í gær.

Tveir greindust á landamærum í gær – báðir með virkt smit í fyrri landamæraskimun.

Fimmtán þeirra sem greindust innanlands í gær eru fullbólusettir og 22 eru óbólusettir.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 119,4, en var 124,1 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 7,4, en var 7,4 í gær.

Alls hafa 11.377 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1172 einkennasýni í gær, 841 sýni á landsmærum og þá greindust 590 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.


Tengdar fréttir

Tíu greindust smitaðir á Reyðar­firði og skólum lokað

Alls greindust tíu manns með kórónuveiruna á Reyðarfirði eftir fjöldasýnatöku gærdagsins sem ráðist var í eftir að grunur kom upp um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Skólum verður áfram lokað í dag á meðan smitrakning stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×