Innlent

54 greindust smitaðir af veirunni innan­lands

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
71 greindist smitaður af veirunni í fyrradag. 
71 greindist smitaður af veirunni í fyrradag.  Vísir/Vilhelm

Að minnsta kosti 54 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Það eru töluvert færri en í gær, þegar 71 greindist smitaður. 33 af þeim sem greindust eru fullbólusettir og 21 óbólusettur.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 42 af þeim sem greindust í gær greindust við einkennasýnatöku og tólf við sóttkvíar- og handahófsskimun. 31 var í sóttkví við greiningu og 23 utan sóttkvíar.

Alls eru 1.019 nú í einangrun og 2.015 eru nú í sóttkví. 950 eru nú í skimunarsóttkví. Alls eru tuttugu og tveir á sjúkrahúsi þar af sjö á gjörgæslu eins og í gær.

Tveir greindust með virkt smit á landamærunum í gær, annar bólusettur og hinn ekki.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 355,1 en var 355,9 í gær.

262.548 eru nú fullbólusettir hér á landi, eða 84 prósent landsmanna tólf ára og eldri.

Alls hafa 10.115 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa þrjátíu dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×