Innlent

Kári: Ekkert fokking væl

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
kári bros2

Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, telur að það verði ekki um­flúið að halda svipuðum sam­komu­tak­mörkunum og nú eru í gildi næstu eitt til tvö árin. Hann er bjart­sýnn á að þjóðin haldi á­fram að tækla verk­efnið af krafti þó ­ljóst sé að það sé orðið ör­lítið lengra en menn höfðu vonast til í upp­hafi.

Kári er þannig í megin­at­riðum sam­mála því sem fram kemur í minnis­blaði sem Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hefur skilað inn til heil­brigðis­ráð­herra þar sem hann fjallar um fram­tíðar­fyrir­komu­lag sótt­varna á Ís­landi vegna Co­vid-19. Þar segist Þór­ólfur telja „ó­lík­legt að hægt verði að búa hér við tak­marka­laust sam­fé­lag á meðan Co­vid-19 geisar í heiminum“.

Hér þurfi á­fram að vera sam­komu­tak­markanir sem gætu miðast við 200 manns, eins metra nándar­regla ætti á­fram að vera í gildi og grímu­skylda þar sem ekki er hægt að tryggja nándar­mörkin.

Við slíkar yfir­lýsingar er eðli­legt að menn velti fyrir sér hve­nær búist sé við að far­aldurinn hætti að geisa í heiminum.

„Ég hugsa að við verðum að ströggla við hann næstu eitt eða tvö árin. Nema það komi fram ein­hver bólu­efni sem minnka smit, koma ekki bara í veg fyrir las­leika. En við skulum taka það fram að þessi spá mín um eitt til tvö ár, hún byggir ekki á sér­stakri bjart­sýni,“ segir Kári Stefáns­son, sem telur menn hafa fengið nóg af bjart­sýnis­spám sem síðan ekki standast.

Tími sé kominn til að við áttum okkur á að við stöndum frammi fyrir lang­tíma­verk­efni.

„En taktu eftir því að það hefur gengið frá­bær­lega vel að höndla þessa far­sótt. Við búum í frjálsu landi. Maður vaknar á morgnana og þakkar skaparanum fyrir það að við skulum ekki vera í Afgan­istan. Þannig við erum bara á fínum stað. Ekkert fokking væl,“ segir Kári.

Hann kveðst bjart­sýnn á að bar­áttan eigi eftir að ganga vel á næstu misserum: 

„Þetta verður miklu meira lang­tíma­verk­efni en við héldum en ég er bjart­sýnn á það. Og þeir sem eru að hnýta í fóst­bróður minn Þór­ólf og segja að hann sé vanda­málið þeir bara gleyma því að ó­vinurinn er pínu-, agnar­lítil veira, ekki sótt­varna­læknir, ekki að­gerðir til þess að hemja þessa pest, heldur þessi veira.“

Eðlilegar hömlur fyrir staði sem selja minni hömlur

Í minnisblaði Þórólfs leggur hann einnig til að opnunartími veitinga- og skemmtistaða verði óbreyttur frá því sem nú er á meðan faraldurinn geisar í heiminum. Það þýðir að barir og skemmtistaðir gætu ekki selt fólki drykki eftir klukkan ellefu á kvöldin og að allir þyrftu að vera farnir út af stöðunum á miðnætti.

Bareigendur hafa lýst óánægju sinni með þessa sýn Þórólfs á næstu mánuði og gekk einn svo langt að kalla þetta dauðadóm fyrir rekstraraðila sem reka bari- og skemmtistaði í miðbænum.

En Kári telur þetta eðlilega ráðstöfun í heimsfaraldri:

„Sá staður sem er að markaðssetja og selja mönnum lyf sem minnka hömlur þeirra þeir verða að búa við þetta. Það er að segja: Ein aðaltekjulind þessara staða er að selja mönnum vökva sem minnkar hömlur sem gerir það að verkum að það er erfiðara fyrir fólk að virða eins metra regluna, erfiðara fyrir fólk að haga sér í samræmi við nauðsyn í þessum faraldri. Og ef menn líta á það sem mikla frelsisskerðingu þá fá þeir litla samúð frá mér.“

Hann bendir á að takmarkanirnar sem sóttvarnalæknir talar um í minnisblaðinu, sem eru í meginatriðum þær sömu og eru nú í gildi, séu ekki mjög strangar.

„Við lifum býsna normal lífi. Ég held að það væri hægt að nýta tónleikarými eins og Eldborgina vel ef menn hólfaskipta, hleypa ekki öllum út í einu og svo framvegis. Þannig ég held að þetta eigi eftir að verða í lagi.“


Tengdar fréttir

„Við erum ekki að horfa á pest sem við losum okkur við á skammri stundu“

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir óbólusetta aldrei í meiri hættu gagnvart kórónuveirunni en í dag. Margir séu sýktir í samfélaginu án þess að vita af því. Veiran verði ekki stöðvuð en bólusetningin eigi að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar hennar.

Kári fór yfir stöðuna á krossgötum í faraldrinum

Það má segja að þjóðin standi á krossgötum þegar kemur að áframhaldi í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Fjöldi smitaðra hefur aldrei verið meira en á móti kemur virðast bólusetningar koma í veg fyrir að margir veikist alvarlega af Covid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×