Erlent

Réttarhöld yfir R. Kelly hefjast í dag

Árni Sæberg skrifar
R. Kelly er meðal annars ákærður fyrir skipulagða glæpastarfsemi.
R. Kelly er meðal annars ákærður fyrir skipulagða glæpastarfsemi. Getty/E. Jason Wamsgans-Pool

Réttarhöld yfir tónlistarmanninum R. Kelly hefjast í dag með opnunarræðum sóknar- og varnaraðila. Fjöldi kvenna hefur sakað tónlistarmanninn um kynferðisbrot.

Samkvæmt frétt AP hefur R. Kelly um árabil verið sakaður um kynferðisbrot gegn konum, stúlkum og drengjum. Hann var til að mynda ákærður fyrir framleiðslu og vörslu barnakláms árið 2008 en var sýknaður af öllum ákæruliðum.

Það var ekki fyrr en með #MeToo byltingunni sem fleiri meintir þolendur R. Kellys stigu fram með ásakanir sínar. Sjónvarpsstöðin Lifetime framleiddi árið 2019 heimildarmyndina Surviving R. Kelly, sem fjallar um brotaferil Kellys og hvernig starfsfólk hans þaggaði niður ásakanir á hendur honum

Skömmu eftir að heimildarmyndin kom út var Kelly handtekinn vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og margvísleg kynferðisbrot.

Saksóknarar í New York munu kalla fjölda kvenna, sem sakað hafa Kelly um kynferðisbrot, til vitnis, flestar undir nafnleynd. Búist er við að þær muni bera vitni um það hvernig umboðsmenn, lífverðir og aðrir starfsmenn Kellys sköffuðu honum konur, stúlkur og stundum drengi til að brjóta á kynferðislega.

Konum hafi verið gert að kalla Kelly „daddy“

Saksóknarar segja að starfsmenn Kellys hafi um árabil markvisst leitað fórnarlamba á tónleikum sem þeir fluttu síðan til Kellys í New York og víðar. Samkvæmt Mann lögunum frá 1910 er bannað að flytja konur og börn milli fylkja í ósiðlegum tilgangi í Bandaríkjunum.

Að sögn saksóknara voru konum og stúlkum settar strangar reglur þegar þær komu heim til Kellys. Þær hafi ekki ráðið hvernig þær klæddust, hvenær þær borðuðu eða fóru á salernið. Þá á þeim að hafa verið gert að kalla Kelly „daddy“ eða pabba.

Verjendur Kellys halda því fram að meint fórnarlömb hans hafi verið aðdáendur hans sem vildu ólmar vera með honum. Þær hafi ekki byrjað að saka hann um ofbeldi fyrr en mörgum árum seinna þegar álit almennings á Kelly breyttist til hins verra.

Réttarhöldin í New York eru ekki þau einu sem R. Kelly stendur í um þessar mundir en hann hefur einnig verið ákærður fyrir kynferðisbrot í Illinois og Minnesota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×