Innlent

Verulegar áhyggjur eftir að tveir starfsmenn greindust

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Matthíasson er forstjóri Landspítalans og hluti af viðbragðsstjórn spítalans. Landspítalinn er á hættustigi en ástæðuna má meðal annars rekja til takmarkaðrar mönnunar á spítalanum yfir sumarið.
Páll Matthíasson er forstjóri Landspítalans og hluti af viðbragðsstjórn spítalans. Landspítalinn er á hættustigi en ástæðuna má meðal annars rekja til takmarkaðrar mönnunar á spítalanum yfir sumarið. Vísir/vilhelm

Fjórir eru inniliggjandi á legudeildum Landspítala með Covid-19 en spítalinn er sem kunnugt er á hættustigi. 461 er í eftirliti á COVID göngudeild þar af 41 barn.

Níu starfsmenn eru í einangrun, 15 eru í heimasóttkví samkvæmt leiðbeiningum landlæknis og 242 eru í vinnusóttkví. Skilgreiningar á sóttkví á Landspítala má lesa hér.

Í tilkynningu frá Landspítalanum kemur fram að tveir starfsmenn og einn inniliggjandi sjúklingur hafi greinst með Covid-19 í gær.

„Að venju fór fram umfangsmikil rakning sem leiddi til þess að tveir sjúklingar og níu starfsmenn voru settir í sóttkví A og 11 starfsmenn í vinnusóttkví C. Uppákomur af þessu tagi, þ.e. að smit greinist óvænt inni í starfseminni eru verulegt áhyggjuefni nú þegar veiran hefur náð mikilli útbreiðslu og tugir smitaðra eru utan sóttkvíar við greiningu.“

Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala brýnir enn og aftur fyrir starfsfólki Landspítala að fara í skimun ef þeir finna fyrir einkennum.

„Starfsfólk COVID-göngudeildar beitir tvenns konar flokkun við mat á áhættu smitaðra einstaklinga á að veikjast alvarlega af völdum COVID-19. Annars vegar er það svokölluð litakóðun einkenna þar sem grænn litur táknar fremur væg einkenni, gulur litur miðlungssvæsin einkenni og rauður litur svæsin einkenni. Hafa ber í huga að einkenni geta versnað mjög hratt þannig að einstaklingur sem fær græna litakóðun getur skyndilega orðið gulur eða jafnvel rauður síðar sama dag. Hins vegar er áhætta einstaklinga flokkuð byggt á aldri og undirliggjandi sjúkdómum í lága, meðal og mikla áhættu. Við mat á einstaklingum með kórónuveirusmit er notast við báðar þessar flokkanir. Þannig getur einstaklingur sem flokkast grænn vegna einkenna engu að síður verið í mikilli hættu á að veikjast alvarlega vegna undirliggjandi áhættuþátta í hæsta flokki,“ segir í tilkynningu frá Landspítalanum.

„Hótelúrræði fyrir starfsfólk Landspítala sem þarfnast aðstöðu annaðhvort vegna vinnusóttkvíar eða vegna smits/sóttkvíar á heimili er í höfn. Beiðnir um hóteldvöl berist á netfangið monnunarteymi@landspitali.is.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×