Þrýstu á ráðuneyti að taka undir lygar um kosningasvik Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2021 16:53 Trump heldur því fram enn þann dag í dag að kosningasvik hafi kostað hann endurkjör í nóvember. Á síðustu vikum sínum í embætti reyndi hann að fá dómsmálaráðuneytið til þess að rannsaka stoðlausar ásakanir um slík svik. AP/Patrick Semansky Nánustu ráðgjafar Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, þrýstu á æðstu embættismenn í dómsmálaráðuneytinu til að fá þá til að taka undir stoðlausar ásakanir Trump um stórfelld kosningasvik. Þeir kiknuðu þó ekki undan þrýstingnum.
Gögn sem eftirlitsnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings hefur birt sýna að ráðgjafar Trump voru byrjaðir að senda Jeffrey Rosen, aðstoðardómsmálaráðherra, tölvupósta til að fá hann til að taka undir lygar Trump um kosningarnar að minnsta kosti tíu dögum áður en hann tók við sem starfandi dómsmálaráðherra eftir að William Barr tilkynnti að hann ætlaði sér að láta af embætti fyrir stjórnarskiptin. Vildu ráðgjafarnir, þar á meðal Mark Meadows, starfsmannastjóri Hvíta hússins, að Rosen léti ráðuneytið rannsaka framandlegar ásakanir bandamanna Trump um kosningasvik sem forsetinn hélt því fram að hefði kostað sig sigurinn gegn Joe Biden. Þetta gerðu bandamenn Trump þrátt fyrir að embættismenn tveggja ráðuneyta auk embættismanna úr Repúblikanaflokki hans sem höfðu umsjón með framkvæmd kosninga víða um landið hefðu sagt að engin svik hefðu verið í tafli. Barr sagði meðal annars að engar vísbendingar væru um svik af því tagi sem forsetinn tönglaðist á að hefðu verið framin. Jeffrey Rosen var til skamms tíma starfandi dómsmálaráðherra eftir að William Barr lét af embætti á síðustu vikum Trump í embætti.Vísir/EPA „Tær geðveiki“ Rosen fékk þannig tölvupósta þar sem hann var beðinn um rannsaka fjarstæðukenndar samsæriskenningar og rangindi um framkvæmd kosninganna í einstökum ríkjum. AP-fréttastofan segir að Meadows hafi meðal annars beðið hann um að kanna ásakanir um kosningasvik sem hefðu verið framin með hjálp hergervihnatta sem var stýrt frá Ítalíu. Vildi Meadows jafnframt að Rosen fundaði með Rudy Giuliani, persónulegum lögmanni Trump, sem fór mikinn með stoðlausum ásökunum um svik eftir kosningarnar í nóvember. Bandamenn Trump höfðuðu fjölda dómsmála vegna kosninganna víða um landið en voru alls staðar gerðir afturreka með ásakanir sínar. Í tölvupóstunum má meðal annars lesa samskipti Rosen og Rich Donoghue, næstráðanda hans í ráðuneytinu, um bón Meadows að þeir hittu Giuliani. „Tær geðveiki,“ skrifaði Donoghue. Rosen var sammála og tók sérstaklega fram að hann hefði verið beðinn um að láta fulltrúa alríkislögreglunnar FBI hitta samstarfsmann Giuliani um ásakanir þeirra. Því hafi hann neitað og bent á að Giuliani gæti fylgt hefðbundnum leiðum til að koma ábendingum sínum á framfæri við FBI. Giuliani hafi firrst við það. „Þegar ég var beðinn um að endurskoða það hafnaði ég því þvert, ég sagði að ég ætlaði ekki að gefa Giuliani neina sérmeðferð eða neinum af „vitnunum“ hans og ítrekaði enn og aftur að ég ætla ekki að ræða við Giuliani um neitt af þessu,“ skrifaði Rosen til Donoghue. "Pure insanity," Donoghue wrote in response to another Mark Meadows request. Rosen agreed. pic.twitter.com/kZCoFQJIdv— Sam Levine (@srl) June 15, 2021 Vildu að ráðuneytið færi fram á ógildingu úrslita Einhver af skeytasendingum starfsmanna Hvíta hússins til Rosen virðast hafa verið að beinu undirlagi Trump forseta. Daginn sem niðurstöður kjörmannaráðsins í forsetakosningunum voru staðfestar og Barr tilkynnti að hann ætlaði að láta af embætti snemma sendi starfsmaður Hvíta hússins póst til Rosen með fyrir sögninni „Frá forseta Bandaríkjanna“. Í póstinum voru tillögur að því hvernig Rosen ætti að tala um meint kosningasvik í Michigan. Alríkisdómari hafði hafnað ásökunum viku fyrr, að sögn New York Times. Rosen, Donoghue og Jeffrey Wall, ríkislögmaður, fengu annan póst frá aðstoðarmanni í Hvíta húsinu 29. desember með drögum að greinargerð til Hæstaréttar Bandaríkjanna um að hann ætti að ógilda niðurstöður forsetakosninga í sex ríkjum þar sem Trump tapaði fyrir Biden. Einkalögmaður Trump hvatti svo háttsetta embættismenn ráðuneytisins til þess að leggja greinargerðina fram.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Gerir ráð fyrir að vera orðinn forseti aftur í ágúst Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur sagt nokkrum fjölda fólks að hann geri ráð fyrir að verða settur aftur í embætti forseta fyrir ágúst á þessu ári. Trump tapaði forsetakosningunum í nóvember á síðasta ári fyrir Joe Biden, sem var kjörinn til fjögurra ára. 2. júní 2021 09:25 Grunaður morðingi kaus Trump í nafni týndrar eiginkonu sinnar Maður sem grunaður er um aðild að hvarfi og mögulegu morði eiginkonu sinnar greiddi atkvæði í forsetakosningunum vestanhafs í nóvember í fyrra. Maðurinn, Barry Morphew, sagðist hafa viljað að Trump myndi vinna og hann vissi að eiginkona sín hefði kosið hann. 16. maí 2021 21:54 Óttast að óhefðbundin endurtalning grafi undan trausti Yfirmenn kjörstjórna í Bandaríkjunum óttast að ákvörðun repúblikana í Arizona um að láta telja aftur atkvæði í stærstu sýslu ríkisins frá því í kosningunum í nóvember verði að fordæmi sem grafi undan trú kjósendur á kosningum í framtíðinni. Donald Trump, fyrrverandi forseti, er sagður haldinn þráhyggju fyrir niðurstöðu endurtalningarinnar. 29. apríl 2021 23:57 Mest lesið Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Erlent Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Erlent Börnin verði heima einn og hálfan dag í viku Innlent Útlendingastofnun tilkynnir starfsmanninn til lögreglu Innlent Björg blandar sér í oddvitaslaginn í borginni Innlent „Ég efa að NATO yrði til staðar fyrir okkur“ Erlent Tuddi hlaut dóm fyrir að níðast á nautgripum sínum Innlent Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Erlent Fleiri fréttir „Ég efa að NATO yrði til staðar fyrir okkur“ Tóku einnig skuggaskip í Karíbahafinu Vill senda danska hermenn til Grænlands Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Ásælni Trumps í Grænland og skuggaskip Rússa Víða truflanir í Evrópu vegna snjókomu Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Útiloka ekki að beita hernum í Grænlandi „Stórt framfaraskref“ Óska eftir fundi með Rubio Kaffilaus fundur í gluggalausu herbergi „Ég ætla ekki að segja hættum við kosningarnar“ Nýtti sér leik sinn í Dansar við úlfa við að mynda sértrúarsöfnuð Hafa birt innan við prósent af Epstein-skjölunum Walz hættir við framboð vegna árása Trump-liða Sænskur ráðherra hlutgerður á miðli Musk Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Svissneski skemmtistaðurinn ekki skoðaður í fimm ár Kristrún, Witkoff og Kushner á fundinum í París í dag Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Fyrrverandi fjármálaráðherra Kanada verður ráðgjafi Selenskí Var með fleiri en fimmtíu hunda á heimilinu Segir þörf á samtali um „meintan“ yfirráðarétt Dana „Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Fækkar ráðlögðum bóluefnum „Ég er ekki í pólitík til að gera fólk glatt“ „Einhver verður að gera eitthvað til að stoppa manninn af“ Hæddist að vörnum Dana á Grænlandi: „Þeir bættu við einum hundasleða“ Sjá meira
Gerir ráð fyrir að vera orðinn forseti aftur í ágúst Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur sagt nokkrum fjölda fólks að hann geri ráð fyrir að verða settur aftur í embætti forseta fyrir ágúst á þessu ári. Trump tapaði forsetakosningunum í nóvember á síðasta ári fyrir Joe Biden, sem var kjörinn til fjögurra ára. 2. júní 2021 09:25
Grunaður morðingi kaus Trump í nafni týndrar eiginkonu sinnar Maður sem grunaður er um aðild að hvarfi og mögulegu morði eiginkonu sinnar greiddi atkvæði í forsetakosningunum vestanhafs í nóvember í fyrra. Maðurinn, Barry Morphew, sagðist hafa viljað að Trump myndi vinna og hann vissi að eiginkona sín hefði kosið hann. 16. maí 2021 21:54
Óttast að óhefðbundin endurtalning grafi undan trausti Yfirmenn kjörstjórna í Bandaríkjunum óttast að ákvörðun repúblikana í Arizona um að láta telja aftur atkvæði í stærstu sýslu ríkisins frá því í kosningunum í nóvember verði að fordæmi sem grafi undan trú kjósendur á kosningum í framtíðinni. Donald Trump, fyrrverandi forseti, er sagður haldinn þráhyggju fyrir niðurstöðu endurtalningarinnar. 29. apríl 2021 23:57