Viðskipti innlent

Ríkissaksóknari áfrýjar máli Sigur Rósar: „Mér þykir þetta orðið skammarlegt“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, er greinilega ekki hress með ákvörðun ríkissaksóknara.
Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, er greinilega ekki hress með ákvörðun ríkissaksóknara. Vísir/Vilhelm

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi héraðsdóms í máli fjögurra liðsmanna hljómsveitarinnar Sigur Rósar. Liðsmönnum sveitarinnar hefur verið birt áfrýjunarstefna.

Þetta staðfestir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari í samtali við Vísi. Georg Hólm, bassaleikari sveitarinnar, segir í færslu á Facebook ljóst að saksóknari ætli ekki að gefast upp alveg strax.

„Hvað á þessi farsi að halda lengi áfram? Á ég að fara að taka þessu persónulega? Mér þykir þetta orðið skammarlegt.“

Georg deilir mynd teiknarans Halldórs í Fréttablaðinu í færslu sinni.

Í skopmynd Halldórs er grínast með það hvort skattayfirvöld ætli ekki að fara í mál við Vigdísi Finnbogadóttur eða Amnesty International fyrst Sigur Rós hafi verið sýknuð í héraði.

Áframhaldandi óvissa

Sýknudómur í máli sveitarinnar var kveðinn upp þann 25. maí. Löngu tímabær niðurstaða og kærkomin að sögn Bjarnfreðar Ólafssonar, lögmanns Sigur Rósar.

„Þú getur rétt ímyndað þér hvað þetta skiptir miklu máli fyrir þá og fjölskyldur þeirra,“ sagði Bjarnfreður við það tilefni.

Athygli vakti að í framhaldinu settu fyrrnefndur Georg og frú heimili sitt á sölu. Mögulega til marks um þau tímamót sem sýknudómurinn var.

„Þarna er framtíðin í húfi, hvernig þeim reiðir af, hvort þau yrðu gjaldþrota og hvernig þetta yrði allt saman. Þetta er mjög sterk og ákveðin sýkna í þessu máli.“

Nú er hins vegar ljóst að málið fer fyrir Landsrétt.

Ákærðir fyrir skattsvik

Tónlistarmennirnir fjórir voru grunaðir um stórfelld skattsvik með því að hafa komist hjá því að greiða ríflega 150 milljónir króna. Auk þeirra var endurskoðandi þeirra ákærður í málinu.

Skattsvikamál hefur velkst um í réttarkefinu um nokkurt skeið en Landsréttur úrskurðaði í febrúar á síðasta ári að málið færi aftur fyrir héraðsdóm og skyldi tekið til efnislegrar meðferðar.

Lögmaður liðsmanna Sigur Rósar gerði á sínum tíma kröfu um að málinu yrði vísað frá á grundvelli laga um tvöfalda refsingu þar sem þeir hefðu þegar greitt sekt vegna málsins.

Jón Þór Birgisson og Orri Páll Dýrason í faðmlögum fyrir utan héraðsdóm.Vísir/Vilhelm

Eignir tónlistarmannanna – þeirra Jóns Þórs Birgissonar, Kjartans Sveinssonar, Georgs Hólm og Orra Páls Dýrasonar – voru um tíma kyrrsettar við rannsókn málsins, en eignirnar námu um 800 milljónum króna.

Jón Þór og Gunnar Þór Ásgeirsson endurskoðandi hans voru einnig sýknaðir fyrir skattsvik er vörðuðu félag Jóns Þórs, Frakk. Voru þeir ákærðir fyrir að hafa komið félagi í eigu Jóns Þórs undan greiðslu tekjuskatts upp á 146 milljónir króna.

Það mál fer nú sömuleiðis fyrir Landsrétt.


Tengdar fréttir

Georg og Svan­hvít selja á Há­valla­götunni

Hjónin Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, og Svanhvít Tryggvadóttir hafa sett parhús sitt við Hávallagötu á sölu. Húsið er 212 fermetrar og með fasteignamat upp á tæpar 95 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×