Alexander á leið til Guðmundar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2021 11:31 Alexander Petersson í leiknum við Portúgal, einum af fjórum leikjum sem hann lék á HM í Egyptalandi. EPA-EFE/Khaled Elfiqi Alexander Petersson er á leið til þýska úrvalsdeildarliðsins Melsungen þar sem hann mun leika undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.
Frá þessu er greint á vefmiðlinum handball.leaks. Melsungen mun kynna nýjan leikmann klukkan 17:00 í dag og það ku vera Alexander. According to unconfirmed information of Handball.leaks (Instagram) the Icelandic right back of SG Flensburg-Handewitt, Alexander Petersson, joins MT Melsungen from the upcoming season. Melsungen has announced, that they reveal a new signing tonight at 19.00.#handball pic.twitter.com/kG7xLsTqhj— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) May 11, 2021 Alexander samdi við Flensburg í lok janúar eftir að hann yfirgaf Rhein-Neckar Löwen. Hann hefur leikið níu leiki með Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni og skorað sjö mörk. Hjá Melsungen hittir Alexander ekki bara fyrir Guðmund heldur einnig Arnar Frey Arnarsson og Elvar Örn Jónsson sem kemur til liðsins frá Skjern í sumar. Þetta verður í annað sinn sem Guðmundur fær Alexander í félagslið sem hann þjálfar en hann fékk hann einnig til Löwen 2012. Þá hefur Alexander lengi leikið undir stjórn Guðmundar í íslenska landsliðinu, nú síðast á HM í Egyptalandi í janúar. Melsungen ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili en auk Alexanders og Elvars hefur liðið samið við portúgalska landsliðsmanninn André Gomes. Melsungen er í 9. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 29 stig en liðið á nokkra leiki inni. Alexander, sem verður 41 árs í byrjun júlí, hefur leikið í Þýskalandi síðan 2004.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Fleiri fréttir Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Sjá meira