Lífið

Helgi Björns ætlar að opna veitinga­stað og skemmti­­stað á Hótel Borg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helgi Björnsson er að setja á laggirnar veitingastað og dansstað á Hótel Borg.
Helgi Björnsson er að setja á laggirnar veitingastað og dansstað á Hótel Borg.

„Ég hef haft mjög gaman af þessu og þetta hefur verið ótrúlega gott tækifæri að geta komið fram í þessu ástandi þar sem það hafa verið fá tækifæri til þess,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson um þær beinu útsendingar sem hann hefur komið að síðastliðið árið á laugardagskvöldum í Sjónvarpi Símans.

Helgi gaf í dag út nýtt lag sem ber nafnið Ekki ýkja flókið. Lagið er samið af Helga og Jóni Jónssyni en textinn er eftir Einar Lövdahl Gunnlaugsson. Upptökustjórn var í höndum Arnars Guðjónssonar. Helgi var gestur hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni í morgun. Hann segist vera nokkuð vongóður fyrir sumrinu.

„Það eru allir orðnir spenntir til þess að fá að gera eitthvað. Þetta er búið að vera ótrúlega erfitt á köflum að geta ekkert slett úr klaufunum. Nú bíður maður bara spenntur, ég er með fimm uppselda tónleika í Háskólabíó sem áttu að vera í fyrra og í vor. Núna erum við búnir að fresta þeim ótiltekið og bíðum bara spenntir til að fá að setja þá í gang.“

Undanfarnar vikur hefur Helgi verið að semja tónlist og taka heimilið í gegn.

„Svo hef ég verið að undirbúa Hótel Borg. Við ætlum að vera með veitingastað og skemmtistað þar. Það er ekki komin dagsetning og þurfum aðeins að sjá til með þetta. Þetta þarf að vera almennilega gert. Við þurfum að vera með algjöra afléttingu á takmörkunum svo að við getum boðið þangað tvö til þrjú hundruð manns. Við ætlum að vera með dansleiki, húsband og allur pakkinn. Fólk getur komið og tekið sveiflu og snúning.“

Nýja lag Helga var frumflutt í þættinum og má heyra það hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.