Innlent

Gasgrímur munu ekki hjálpa í súrefnislausum dældum

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands. 
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands.  Vísir/Vilhelm

Á morgun spáir hægari vindi við gossvæðið í Geldingadal, sem boðar ekki gott fyrir þá sem höfðu hugsað sér að berja hamfarirnar augum.

Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar, segir veðurspána gera ráð fyrir nánast logni seinni part morgundagsins og þá geti hættuleg gös safnast fyrir, ólíkt síðustu dögum í sterkri sunnan átt.

„Það er auðvitað bæði hár styrkur af brennisteinstvíildi sem þarf að hafa áhyggjur af. Svo er það líka koltvísýringur og kolmonoxíð og önnur gös sem hreinlega eru þung og geta valdið því að það myndast ekkert súrefni. Ef það myndast slíkar aðstæður hjálpa gasgrímur ekki neitt. Og það er stórhættulegt í slíkum dældum,“ segir Kristín.

Hve lengi tórir fólk í slíkum aðstæðum?

„Ekki lengi.“

Vísindamenn hafa áhyggjur af því að framlenging geti opnast fyrirvaralaust til norðausturs eða suðurs á þeirri sprungu sem nú gýs úr.

„Við sáum það í gosinu á Fimmvörðuhálsi. Þar opnuðust sprungur fyrirvaralaust og fólk var í stórhættu. Þetta er eitthvað sem fólk sem fer á svæðið þarf að vera meðvitað um.“

Hún segir þó engin merki um það eins og er.

„Við fylgjumst mjög vel með þessu. Við sjáum mjög litla skjálfta alls staðar í ganginum. Við fylgjum vel með því, sérstaklega ef skjálftar fara að grynnast. En það eru engin merki um það eins og er.“

Gosvirknin var svipuð á svæðinu í dag og síðustu daga.

„Og það lítur út fyrir að gosið sé minna en við sjáum á gosóróa mælingum að styrkurinn er svipaður. En það kannski lítur út fyrir að vera minna því gígurinn er að hækka.“


Tengdar fréttir

Brýnt að virða tilmæli því á morgun gæti mengun orðið lífshættuleg

Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á eldgosinu sé svipuð og í upphafi og að það sé ekkert sem bendi til þess að því ljúki í dag. Biðlað er til fólks um að virða tilmæli almannavarna því þegar lægir á morgun gæti gosmengun í Geldingadal orðið lífshættuleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×