Brynjólfur sagður stinga sér til Kristiansunds fyrir metfé Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2021 16:30 Brynjólfur Andersen Willumsson er á leið til Noregs ef að líkum lætur. vísir/hulda margrét Norska úrvalsdeildarfélagið Kristiansund hefur náð samkomulagi við Breiðablik um kaup á knattspyrnumanninum unga Brynjólfi Andersen Willumssyni.
Kaupverðið er sagt metupphæð í sautján ára sögu Kristiansund en félagið á eftir að ganga frá smáatriðum í sambandi við samninginn um kaup og kjör Brynjólfs. Þetta fullyrðir norski miðillinn Nettavisen en einnig var fjallað um málið í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. Brynjólfur, sem er tvítugur, skoraði fjögur mörk í 17 leikjum fyrir Breiðablik í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð. Hann skoraði eitt mark í átta leikjum með U21-landsliðinu í undankeppni EM og leikur væntanlega með liðinu í lokakeppninni síðar í þessum mánuði. Aðalmarkaskorarinn fór til Sádi-Arabíu Kristiansund BK er ungt félag frá samnefndum bæ á vesturströnd Noregs. Það varð til við samruna Kristiansund FK og Clausenengen FK haustið 2003. Liðið lék í fyrsta sinn í efstu deild árið 2017 og hefur fest sig þar vel í sessi. Kristiansund hafnaði í 5. sæti á síðustu leiktíð en varð svo að horfa á eftir sínum aðalmarkaskorara, Amahl Pellegrino, til Sádi-Arabíu. Hann skoraði 25 mörk á síðustu leiktíð en samkvæmt Nettavisen er Brynjólfur, sem er sókndjarfur miðjumaður eða framherji, meðal annars fenginn til að draga úr skaðanum sem brotthvarf Pellegrino hefur í för með sér. Keppni í norsku úrvalsdeildinni á að hefjast 5. apríl þegar Kristiansund mætir LIlleström.
Breiðablik Pepsi Max-deild karla Norski boltinn Mest lesið Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport Járnkona sundsins kveður Sport Fleiri fréttir Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Sjá meira