Fíkn er sjúkdómur! Sigurður Páll Jónsson skrifar 11. febrúar 2021 12:30 Að sópa rykinu undir teppið er mörgum tamt ef ekki á að þrífa almennilega. Skyndilausnir henta stjórnmálamönnum yfirleitt betur heldur en framtíðarsýn og lausnir sem taka langan tíma. Vandamál vegna neyslu áfengis og annara fíkniefna hafa ekki beðið varhluta af slíkum hugsunarhætti. Vandamál tengd fíkn hafa fylgt mannkyninu um aldir. Þó mjög margt hafi unnist í glímunni við fíknisjúkdóminn er mikið verk óunnið og ýmislegt sem bendir til að við séum á slæmum stað. Rannsóknir sína að 20% mannkyns sem neytir fíkniefna ýmiskonar, glími við fíknivanda. Meðferð á Íslandi er á heimsmælikvarða. Framfarir í meðferðum, lækningum og stuðningur sjálfshjálparsamtaka hafa verið miklar. Viðhorf til efnanna sem sjúkdómurinn veldur er misjafnt. Stór hluti þeirra er ólöglegur og af þeim sökum er litið á þá sem þau nota sem lögbrjóta. Til upprifjunar í sögulegu samhengi, þá var áfengi bannað á árunum 1920 til 1935 og fjölmennir hópar skilgreindir sem brotamenn. Stjórnmálamönnum hafa oftar en ekki verið mislagðar hendur í glímunni við fíknisjúkdóminn. Á Íslandi var t.d. talað um fíkniefnalaust Ísland fyrir árið 2000 af ákveðnum stjórnmálaflokkum seint á síðustu öld. Afglæpavæðing neysluskammta. Á samráðsgátt stjórnvalda hafa legið drög að lögum frá heilbrigðisráðherra frá 17. nóvember sem miða að því að afglæpavæða neysluskammta fíkniefna. Þetta er svipað frumvarp og fellt var í atkvæðagreiðslum á Alþingi í fyrra. Umsagnir um málið á samráðsgátt eru 24 talsins. Margir eru ánægðir með áformin en aðrir, líkt og undirritaður, telja að til að ná árangri þurfi heildstæð stefnumótunarvinna að fara fram áður en slík ákvörðun er tekin. Fíkn er sjúkdómur og meðferðin við honum og þekking hér á landi er mikil. Að þeirri lækningu koma að stærstu leyti áhugasamtök og meðferðarstofnanir með gríðarlega sérþekkingu. Gögnin sem fylgja þessum áformum gefa til kynna að með þessari stöku lagasetningu sé m.a. skörun við dómsmálaráðuneytið sem fer með málefni ríkissaksóknara og lögreglu sem framfylgja lögum um ávana- og fíkniefni. Markmið nýrra laga. Í drögum ráðherra að lögum um afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna koma jafnframt fram áform um helstu breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, þau eru: Varsla á neysluskömmtum verði ekki refsiverð. Ráðherra sé gert með reglugerð að kveða á um hvaða ávana- og fíkniefni teljist til eigin nota miðað við neysluskammta. Heimild lögreglu til upptöku efna nái ekki til þeirra efna sem séu í vörslu einstaklinga yfir 18 ára aldri þegar magn efnanna er innan þess sem talist getur til eigin nota. Auk þessa kemur fram í skjalinu að ekki hafi verið gerð verkefnaáætlun. Þá segir að áætlað sé að frumvarpið taki þegar gildi, verði það að lögum. Ekki er gert ráð fyrir undirbúningi eða aðlögun jafn áhrifamikils máls. Við yfirlestur draganna kemur fram að takmörkuð vinna hafi farið fram við undirbúning þessa viðamikla verkefnis, sem vel að merkja, lýtur ekki einungis að breytingum á lögum. Hvað var gert í Noregi? Í Noregi hefur til dæmis farið fram gríðarlega umfangsmikil stefnumótunarvinna í tengslum við endurskoðun á málefnum sem varða ávana- og fíkniefni þar í landi. Hinn 23. mars, 2018 var til að mynda komið á fót tíu manna nefnd sem hafði með höndum það verkefni að yfirfara löggjöf og móta stefnu í þessum efnum. Nefndin skilaði skýrslu til heilbrigðisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis Noregs 19. desember, 2019 og telur skýrslan rúmlega 400 blaðsíður. Norska nefndin samanstóð af þverfaglegum hópi sérfræðinga og hafði samráð við fjölda stofnana, samtaka og annara hagsmunaaðila á meðan á vinnu nefndarinnar stóð. Í skýrslunni er meðal annars að finna tillögur að lagabreytingum á hinum ýmsu lagabálkum. Nefndin lagði til að varsla neysluskammta verði ekki refsiverð en þó verði lögreglu sem endranær, heimilt að stöðva notkun, verði hún vör við slíkt og gera efni upptæk. Þess í stað er þeim sem teknir eru með neysluskammta gert skylt að sækja fund hjá félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem boðin verði fræðsla og aðstoð. Samhliða þessu leggur nefndin til að forvarnarstarf verði stóraukið og meðferðarúrræðum fjölgað. Í skýrslunni eru einnig tillögur meiri- og minnihluta nefndarinnar um mörk neysluskammta. Framangreint er aðeins brot að því sem norska nefndin tók til skoðunar og getið er um í skýrslunni. Hvað er neysluskammtur? Til stóð í kjölfar setningu laga nr. 48/2020 um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (Neyslurými), að skilgreina í reglugerð hvað teldist vera neysluskammtar sem notendum væri heimilt að bera á sér til notkunar í neyslurými. Reglugerðin hefur ekki enn litið dagsins ljós. Við samningu reglugerðarinnar þótti erfiðleikum bundið að skilgreina hvað teldist neysluskammtur og mun því ekki verða öðruvísi háttað þegar tekið verður til skoðunar við hvaða mörk beri að miða að því er varðar afglæpavæðingu neysluskammta. Verkefni sem þetta er eins og áður segir gríðarlega viðamikið. Því þarf að fara í heildstæða stefnumótunavinnu líkt og norsku yfirvöldin hafa farið í gegnum undanfarin ár. Hafa þarf í huga að þegar svona viðamiklar breytingar eru lagðar fram, að undirbúningur og heildarendurskoðun þarf að eiga sér stað á fyrirhuguðum breytingum áður en frumvarp um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni verður lagt fram. Eins og kom fram við lagasetningu á neyslurýmum vorið 2020 átti að gefa út reglugerð um hvað teldist vera neysluskammtur. Sú reglugerð hefur ekki komið fram. Þeirri spurningu er ekki auðvelt að svara. Skammtur sem dugar einum getur drepið annan. Fíklar eru veikt fólk og það ber að koma fram við það sem slíkt. Fíkn er sjúkdómur sem hefur afleiðingar fyrir fjölskyldu fíkilsins. Í framkvæmd hljóta sem betur fer fáir refsingu fyrir vörslu neysluskammta. Dómur fyrir slíkt getur hins vegar fylgt einstaklingum alla ævi, jafnvel þó að viðkomandi hafi náð bata, það er miður. Umsögn Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu bendir m.a. á í sinni umsögn: Umsögn frá ríkissaksóknara dags. 14. nóv. 2019, við frumvarp um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta) á 150. löggjafarþingi 2019-2020, 23 mál. Þau efni sem falla undir lög nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og finnast á íslensku forráðasvæði eru þangað komin eða tilkomin á ólögmætan hátt og því verði þau gerð upptæk. Refsing hefur áhrif til lífstíðar. Það mætti skoða þá leið að milda refsingar í slíkum tilvikum. Mikilvægt skref í því sambandi væri að refsing þeirra sem lögreglan hefur afskipti af og væru með neysluskammt, kæmi aldrei fram á sakavottorði og yrði eytt út úr skrám lögreglu eftir eitt til tvö ár. Undirritaður hefur í þrjátíu ár fjallað um þessi mál og horft á eftir mörgum vinum og félögum sem fallið hafa frá af völdum fíknisjúkdóms, bæði af neyslu löglegra og ólöglegra efna. Stjórnvöld þurfa að eyða biðlistum inn í meðferðir. Auka fræðslu og félagsþjónustu. Stórauka forvarnir og samstarf við lögregluna. Alvöru aðgerða er þörf, ekki smáskammtalækninga. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í NV-kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigurður Páll Jónsson Miðflokkurinn Alþingi Alþingiskosningar 2021 Skoðun: Kosningar 2021 Fíkn Mest lesið Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir Skoðun Halldór 13.12.2025 Halldór Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Saman gegn fúski Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Setjum við Ísland í fyrsta sæti? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Treystir Viðreisn þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Allt fyrir ekkert – eða ekkert fyrir allt? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Glansmynd án innihalds Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Kæra Kristrún, eru Fjarðarheiðargöng of dýr? Helgi Hlynur Ásgrímsson skrifar Skoðun Samvinna er eitt en samruni allt annað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Eyðilegging Kvikmyndasafns Íslands Sigurjón Baldur Hafsteinsson skrifar Skoðun Ráðherra sem talar um hlýju en tekur úrræði af veikum Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Saman gegn fúski Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir,Guðbergur Kristjánsson skrifar Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Innflytjendur, samningar og staðreyndir Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ál- og kísilmarkaðir í hringiðu heimsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Útgerðarmenn vaknið, virkjum nýjustu vísindi Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu margar ókeypis máltíðir finnur þú í desember? Þorbjörg Sandra Bakke skrifar Skoðun Sjálfgefin íslenska – Hvernig? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vonbrigði í Vaxtamáli Breki Karlsson skrifar Skoðun Reykjalundur – lífsbjargandi þjónusta í 80 ár Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar Sjá meira
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir,Guðbergur Kristjánsson skrifar
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun