Erlent

Markviss skimun af ótta við útbreiðslu suður-afríska afbrigðisins

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Leit stendur nú yfir að suður-afríska afbrigði kórónuveirunnar í Bretlandi til að hægt sé að sporna gegn útbreiðslu hennar.
Leit stendur nú yfir að suður-afríska afbrigði kórónuveirunnar í Bretlandi til að hægt sé að sporna gegn útbreiðslu hennar. Matthew Horwood/Getty

Markviss skimun eftir suður-afríska afbrigðinu svokallaða er hafin á nokkrum svæðum í Bretlandi eftir að afbrigðið greindist án þess að hægt væri að rekja það.

Hingað til hefur rakningarteyminu tekist að rekja afbrigðið til farþega og íbúa sem höfðu nýlega verið í Suður-Afríku.

Sóttvarnayfirvöld í Bretlandi óttast því mjög að um samfélagssmit sé að ræða og hafa brugðið á það ráð að skima markvisst fyrir afbrigðinu á þeim stöðum þar sem afbrigðið hefur greinst með því að ganga í hús, senda íbúum sérstakt kórónuveirupróf sem þeir geta notað heima hjá sér auk þess sem sérstakar skimunarstöðvar hafa verið settar upp í þeim hverfum þar sem afbrigðið fannst.

Markviss skimun fer nú fram í Surrey, Lundúnum, Kent, Hertfordshire og Walsall samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins.

Á sama tíma gerði Boris Johnson, forsætisráðherra, lítið úr þeim möguleika að bóluefnin, sem í notkun eru, dugi ekki á suður-afríska afbrigðið.

Vísbendingar eru um að bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni virki ekki nægilega vel á suður afríska afbrigðið því niðurstöður þriðja fasa prófana sýndu aðeins fimmtíu og sjö prósent virkni gegn veirunni í Suður-Afríku þar sem afbrigðið er í mikilli dreifingu en hátt í 72% virkni í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Bóluefni Janssen með 66 prósent virkni

Niðurstöður þriðja fasa prófana á bóluefni belgíska lyfjafyrirtækisins Janssen sýna að bóluefnið hefur 66% virkni gegn kórónuveirunni en allt að 72% virkni í Bandaríkjunum.

Suðurafríska afbrigðið greinist í Bandaríkjunum

Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem fyrst greindist í Suður-Afríku, greindist í Bandaríkjunum í dag. Tveir einstaklingar greindust smitaðir af afbrigðinu í Suður-Karólínu í dag og segja heilbrigðisyfirvöld það nánast víst að fleiri hafi smitast af afbrigðinu en hafi enn ekki greinst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×