Erlent

Kim heitir bættum samskiptum við umheiminn

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu.
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. AP/KCNA

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir nauðsynlegt að bæta samband ríkisins við umheiminn og heitir því að gera það. Þetta sagði einræðisherrann á flokksþingi Verkamannaflokks Norður-Kóreu í gær en fjórði dagur þingsins er í dag.

Norður-Kórea hefur lengi verið eitt einangraðasta ríki heims og sú einangrun hefur aukist mjög á undanförnum árum vegna kjarnorkuvopnaáætlunar ríkisins.

Samkvæmt Yonhap fréttaveitunni, sem vitnar í ríkismiðla nágranna sinna í norðri, ræddi Kim einnig um skýrslu sem gerð var um samband ríkjanna á Kóreuskaganum en ekki liggur fyrir hvort ummæli hans tengist því að bæta samskipti Norður- og Suður-Kóreu sérstaklega.

Samband ríkjanna tveggja hefur versnað á undanförnum misserum eða síðan Kim og Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, héldu síðasta fund þeirra árið 2019 og komust ekki að samkomulagi.

Í fyrra sprengdu Norður-Kóreumenn svo samvinnustofnun ríkjanna á landamærum þeirra í loft upp vegna áróðursbæklinga sem höfðu verið sendir til Norður-Kóreu frá Suður-Kóreu.

Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa boðið nágrönnum sínum á fundi síðan þá en þeim boðum hefur ekki verið svarað.

Sjá einnig: Norður-Kórea sprengir sam­vinnu­stofnun Kóreuríkjanna á landa­mærunum

Sérfræðingar sem Yonhap ræddi við segjast telja ummæli Kim til marks um að hann ætli sér að reyna að hefja viðræður við ríkisstjórn Joe Biden um að viðskiptaþvinganir gegn einræðisríkinu verði felldar niður.

Talið er að Kim eigi afmæli í dag og að hann sé 37 ára. Hann tók við völdum þegar faðir hans Kim Jong Il dó árið 2011. Hann varð fyrsti leiðtogi landsins til að funda með forseta Bandaríkjanna og hefur sömuleiðis rætt við leiðtoga Kína, Rússlands, Suður-Kóreu og annarra ríkja.

Eftir að viðræður hans og Trumps skiluðu engum árangri hefur Kim reynt að bæta efnahagslegt ástand landsins og viðurkenndi hann fyrr í vikunni að efnahagsstefna hans væri misheppnuð.

Ríkisstjórn Kim hefur gengið hart fram gegn því sem kallað hefur verið utanaðkomandi andsósíalista aðgerðir og kallaði Kim í gær eftir því að slíkum aðgerðum yrði eytt innan landamæra ríkis síns. AP fréttaveitan hefur eftir greinendum að efnahagsleg vandræði Norður-Kóreu hafi valdið ákveðnum vandræðum sem verið sé að reyna að kveða niður.

Kapítalismi hafi mögulega hreiðrað um sig á svörtum mörkuðum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×