Innlent

Fjöldi smitaðra kominn yfir 1.200

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Landspítalanum á Fossvogi. Myndin er úr safni.
Frá Landspítalanum á Fossvogi. Myndin er úr safni. Landspítali/Þorkell

Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.220 hér á landi. Þeim hefur fjölgað um 85 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær.

Á síðunni kemur einnig fram að 35 manns hafi verið lagðir inn á sjúkrahús vegna faraldursins, þar af 11 á gjörgæslu, einum fleira en í gær. Tölurnar eru birtar daglega klukkan 13:00 en Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítalanum, sagði Vísi fyrir hádegi að tólf liggi nú á gjörgæsludeild. Ellefu hafi verið í gær en einn hafi verið lagður inn í nótt. Hann átti von á að einhverjir útskrifist af gjörgæslu í dag.

Alls hefur 225 manns batnað af veikinni. Alls eru nú 7.822 manns í sóttkví og 993 í einangrun. Þá hafa 7.735 manns lokið sóttkví. Sýni hafa verið tekin úr 19.516 manns.

Klukkan tvö verður, líkt og síðustu daga, haldinn upplýsingafundur almannavarna, landlæknis og sóttvarnalæknis þar sem farið verður yfir stöðu þeirra mála sem tengjast faraldri kórónuveirunnar og aðgerðum til þess að sporna við útbreiðslu.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, verður einnig á fundinum og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, verður gestur þar og ræðir um helstu verkefni og áskoranir stofnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×