Innlent

Seyðfirðingar fleyta kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Seyðfirðingar koma saman við Lónið og fleyta kertum þegar nýtt ár gengur í garð. 
Seyðfirðingar koma saman við Lónið og fleyta kertum þegar nýtt ár gengur í garð.  Vísir/Vilhelm

Seyðfirðingar hyggjast koma saman við Lónið á áramótunum og fleyta þar kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum. Margir eru hvekktir eftir drunurnar sem heyrðust í fjallinu eftir aurskriðurnar sem féllu á bæinn í síðustu viku og óttast að þeir muni endurupplifa áfallið.

„Það var gríðarlegur hávaði sem fylgdi skriðunum og þá sérstaklega þessari stærstu þannig að fólk er enn þá, eðlilega, mjög hvekkt, og svona ekki alveg til í að heyra flugeldaskotin,“ segir Hildur Þórisdóttir, fulltrúi í sveitarstjórn Múlaþings.

Íbúi á Seyðisfirði sem fréttastofa ræddi við orðaði það þannig að varla mætti draga stól eftir gólfi án þess að hjartað taki kipp. Hildur segir marga eiga um sárt að binda og að því hafi komið upp hugmyndir um að sleppa óþarfa hávaða um áramótin.

„Það eru uppi hugmyndir um að það verði bara kertafleyting á Lóninu, en skipulagning er ekki komin af stað,“ segir hún.

Hún segir suma þó eiga erfitt með að snúa aftur í bæinn. „Það mun líða langur tími þangað til að íbúar hér muni treysta fjöllunum aftur.“

Áfram er óvíst hvenær íbúar geta snúið aftur til síns heima. Endurskoðun á rýmingarsvæðinu á Seyðisfirði mun ekki fara fram á morgun líkt og vonir stóðu til, vegna veðurs. Talsverðri úrkomu er spáð á Austurlandi á morgun.

Engar tilkynningar hafa borist um skriður eða drunur á svæðinu og mælingar í morgun sýna að lítil sem engin hreyfing hafi orðið á upptakasvæðum skriðufalla frá því í gær. Frostið var kærkomin sjón í bænum fyrir jól eftir gríðarlegt úrhelli sem leiddi til stærstu aurskriða sem fallið hafa á byggð á Íslandi.

Fyrirhugað var að hægt yrði að endurskoða rýmingaráætlun á morgun en veðurspáin varð verri en búist var við og gul veðurviðvörun hefur verið gefin út, sem tekur gildi á miðnætti. Talsverðri úrkomu er spáð sem þýðir að ekki verður hægt að endurskoða áætlunina fyrr en í fyrsta lagi á mánudag.

Þá má búast við að færð spillist á Fjarðarheiði og fólk beðið um að fylgjast vel með færð á vegum. Veður verður þó skaplegra eftir helgi og þá er vonast til að hægt verði að hefja frekara hreinsunarstarf og skoða rýmingaráætlun.


Tengdar fréttir

Fyrir/eftir myndband sýnir gapandi sárið í fjallinu

Þrívíddarmyndband sem starfsfólk verkfræðistofunnar Eflu sýnir glögglega hversu stór hluti fjallsins féll niður er stóra skriðan féll á þéttbýlið í Seyðisfirði síðastliðinn föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×