Skoðun

Bréf til bæjar­stjórnar Hafnar­fjarðar og Fræðslu­ráðs vegna sumar­opnunar leik­skóla

Elísabet Karlsdóttir og Linda Björk Halldórsdóttir skrifa

Við aðstoðarleikskólastjórar í Hafnarfirði höfum ekki verið áberandi í umræðunni um sumaropnun leikskóla en hún hefur ítrekað verið rædd í okkar hópi og almennt hefur komið fram mikil óánægja með þessar fyrirætlanir. Fulltrúar leikskólastjóra hafa komið á fund kjörinna fulltrúa og sett fram fagleg rök sem stríða gegn sumaropnun og erum við undirritaðar sammála þessum rökum og deilum áhyggjum þeirra af faglegu starfi leikskólanna og afkomu þeirra sem stofnanna. Þessi rök ættu að vera öllum sem í bæjarstjórn sitja ljós og því ætlum við ekki að tíunda þau í þessu bréfi.

Aðstoðarleikskólastjórar sinna ýmsum hlutverkum innan leikskólanna og eru þau meðal annars fólgin í því að skipuleggja mönnun dagsins, styðja við deildirnar, leysa af matartíma starfsmanna þegar þess þarf ásamt því að sinna ýmsum stjórnunarlegum verkefnum í samvinnu við leikskólastjóra. Okkur undirrituðum finnst gaman í vinnunni og finnst við vera heppnar að fá að vera í samskiptum við frábært samstarfsfólk og öll þessi yndislegu börn. Við berum hag þessara tveggja framangreinda hópa fyrir brjósti og viljum að leikskólar bjóði þeim nærandi, uppbyggjandi og lærdómsríkar starfsaðstæður. Önnur okkar sat samstarfshóp skipaðan fagmönnum í leikskólamálum skólaárið 2018-2019 um bættar starfsaðstæður í leikskólum og setti hópurinn fram ýmsar tillögur sem eru til þess fallnar að bæta umhverfi barna og starfsmanna í leikskólum í Hafnarfirði. Í þessum tillögum er hvergi minnst á sumaropnun. Á þeim tíma sem fræðsluyfirvöld og kjörnir fulltrúar hefðu átt að vera að leita leiða til þess að verða við tillögum starfshópsins komu fram fyrirætlanir um sumaropnun sem hafa sett leikskólasamfélagið í Hafnarfirði á hvolf. Allir leikskólastjórar hafa lýst yfir óánægju sinni með sumaropnun og um 400 starfsmenn leikskóla hafa skrifað undir lista þar sem sumaropnun er mótmælt. Í gær komu félögin FL, FSL og Hlíf fram og skoruðu á bæjaryfirvöld að endurskoða ákvörðun um sumaropnun. Næg fagleg rök eru gegn sumaropnun og virðist hún ekki henta starfi leikskólanna. Ákvörðunin um sumaropnun virðist hafa verið tekin með hagsmuni atvinnurekanda foreldra að leiðarljósi. Nú er okkur spurn, er ekki kominn tími fyrir ykkur til þess að hlusta á allt þetta fólk sem hefur sérhæft sig í menntun barna og leikskólamálum?

Höfundar eru aðstoðarleikskólastjórar í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×