Erlent

Undarleg staðsetning blaðamannafundar Giuliani vekur athygli

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekki beint hefðbundið umhverfi fyrir blaðamannafund.
Ekki beint hefðbundið umhverfi fyrir blaðamannafund. AP Photo/John Minchillo

Undarlegur blaðamannafundur Rudy Giuliani, lögmanns Donalds Trump, í dag hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að staðsetning hans þótti afar undarleg, auk þess sem að á sama tíma og fundurinn stóð yfir var tilkynnt að Joe Biden, frambjóðandi Demókrata, hefði unnið sigur í forsetakosningunum.

Staðsetning fundarins hefur vakið hvað mesta athygli en fundurinn var haldinn fyrir framan húsnæði Four Seasons Total Landscaping, garðyrkjufyrirtækis staðsett í iðnaðarhverfi Philadelphiu. Umhverfið þótti nokkuð sóðalegt, enda klámbúð við hliðina á garðyrkjufyrirtækinu.

Tilkynnti að fundurinn yrði á Four Seasons, breyttist svo í Four Seasons Total Landscaping

Því hefur verið haldið fram að einhver hafi gert mistök við skipulagningu blaðamannafundarins en fyrr um daginn hafði Trump tilkynnt að halda ætti blaðamannafund á Four Seasons í Philadelphiu. Four Seasons er þekkt hótelkeðja og líklega má þar finna sal sem hefði mögulega hentað betur en bílastæðið hjá umræddu garðyrkjufyrirtæki.

Nokkru síðar tilkynnti Trump að fundurinn yrði haldinn hjá Four Seasons Total Landscaping og þangað flykktust nokkrir tugir blaðamanna til þess að heyra hvað Giuliani og félagar höfðu að segja.

Hótelið sjálft gaf svo út áréttingu um að fundurinn yrði ekki haldinn þar.

Það var sem sagt á bílastæðinu fyrir utan garðyrkjufyrirtækið, steinsnar frá klámbúð sem meðal annars hefur fengið umsögnina „óhugnanlegur staður“ á Yelp, þar sem Giuliani útskýrði fyrir umheiminn hvað myndi felast í baráttu forsetans við það sem hann telur vera kosningasvindl í forsetakosningunum, þó að ekki hafi verið sýnt fram á að neitt slíkt hafi átt sér stað.

Hélt Giuliani því fram, án þess að færa fyrir því sannanir, að átt hafði verið við atkvæði í Pennsylvaníu, ríkinu sem réði úrslitum í forsetakosningunum. Þrír eftirlitsmenn kjörstaða voru með honum á fundinum þar sem þeir sögðu að komið hafi verið í veg fyrir að þeir gætu fylgst nægjanlega vel með talningunni. Sagðist Giuliani hafa getað komið með 50 slíka eftirlitsmenn með sér.

Rudy Giuliani hefur að undanförnu verið einn helsti ráðgjafi Donalds TrumpAP Photo/John Minchillo

Sagði Giulaini að framboð Trump myndi leggja fram fjölda málsókna vegna þess að flokksmenn og aðrir á vegum Repúblikanaflokksins hefðu ekki getað fylgst nægjanlega vel með talningu atkvæða.

Kom í ljós á miðjum fundi að Biden hafði sigrað

Þá hélt hann því fram að sú staðreynd að Biden hafi sigið fram úr að kjördegi loknum sé sönnun þess að átt hafi verið við kosningarnar, Biden í hag. Trump leiddi í Philadelphiu þangað til póstatkvæðin voru talin. Þau féllu Biden í skaut með miklum meirihluta, ekki síst vegna þess að stuðningsmenn Biden voru mun líkegri til þess að nýta sér atkvæðagreiðslu með pósti, eitthvað sem Donald Trump hvatti stuðningsmenn sína til þess að gera ekki.

Fundurinn fór þó eiginlega alveg af hjörunum þegar í ljós kom á miðjum fundi að Biden hafði verið lýstur sigurvegari af helstu fjölmiðlum Bandaríkjanna. Fékk Giuiliani þær upplýsingar á miðjum fundi.

„Ekki vera með þessa vitleysu. Sjónvarpsstöðvarnar fá ekki að ákveða hver fer með sigur af hólmi,“ sagði Guiliani


Tengdar fréttir

Guðni sendir kveðjur til Biden og Harris

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendir Joe Biden og Kamölu Harris heillaóskir vegna sigurs þeirra í forsetakosningunum vestanhafs.

Biden sigraði, hvað svo?

Joe Biden mun verða 46. forseti Bandaríkjanna eftir að hafa borið sigur úr býtum í forsetakosningum þar í landi samkvæmt mati helstu fjölmiða á úrslitum kosninganna. Biden hefur unnið sigur í ríkjum sem tryggja honum fleiri en þá 270 kjörmenn sem þarf til þess að sigra í kosningunum. En hvað gerist næst?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×