Innlent

42 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru nú þrettán látin.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru nú þrettán látin. Vísir/Vilhelm

Alls greindust 42 með kórónuveiruna innan­lands í gær. 22 af þeim 42 sem greindust voru í sóttkví, eða 52 prósent. Tuttugu þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 48 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru 62 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. Í gær voru 58 á sjúkrahúsi og einn á gjörgæslu.

21 smit greindist á landamærum. Var um að ræða tólf virk smit, eitt í seinni landamæraskimun og svo er mótefnamælingar beðið í tilvikum fjögurra. Fjórir voru með mótefni.

1.005 manns eru nú í einangrun, samanborið við 1.062 í gær. Þá eru 1.730 í sóttkví í dag, samanborið við 1.667 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim 42 sem greindust innanlands í gær greindust 33 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og níu við sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nú hafa 4.719 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Af þeim veikst hafa af Covid-19 eru þrettán nú látnir.

Alls voru tekin 1.276 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 567 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 197 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×