Innlent

Yfir­maður smitrakningar­teymisins: „Við erum í al­gjörri drauma­að­stöðu til að klára þetta“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna.
Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna.

Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir að vinna teymisins í þriðju bylgju faraldursins hafi gengið vel.

Þegar smituðum tók að fjölga hratt á skömmum tíma þurfti að bregðast við og bæta við mannskap en teymið finnur strax fyrir því þegar fjöldi smitaðra fer niður á við eins og verið hefur síðustu daga.

„Það er þetta þegar fólk minnkar tengslanetið sitt og minnkar fjöldann af þeim sem fólk hittir. Það hefur rosaleg áhrif á þá sem þurfa á sóttkví að halda,“ sagði Jóhann í viðtali í Reykjavík síðdegis í gær.

Aðspurður hvort það væri þá betra að halda sig til hlés núna sagðist hann telja að fljótlega geti almenningur um frjálst höfuð strokið.

„Við erum í algjörri draumaaðstöðu til að klára þetta. Við sjáum strax að tölurnar eru að færast okkur í hag og fljótlega getum við um frjálst höfuð strokið.“

Það gæti þó vissulega komið bakslag þegar slakað verði á þeim aðgerðum sem nú eru í gildi til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þá væri fólk að taka áhættu með því að vera að hittast mikið á meðan smit væri eitthvað dreift í samfélaginu.

„En um leið og tölurnar eru komnar niður eins og við sáum að gerðist í sumar þá eru líkurnar miklu minni, þá geturðu skellt þér í tímann og það eru mjög litlar líkur á að einhver sé smitandi þar. Það er mín tilfinning að það sé stutt eftir og við förum að klára þetta,“ sagði Jóhann og vísaði þarna í líkamsræktartíma sem höfðu verið til umræðu fyrr í viðtalinu, eins og heyra má í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×