Erlent

Noregs­konungur þarf að gangast undir hjarta­að­gerð

Atli Ísleifsson skrifar
Sonja drottning og Haraldur konungur.
Sonja drottning og Haraldur konungur. Getty

Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er gert ráð fyrir að hann gangist undir hjartaaðgerð á morgun. Þarf að skipta út hjartaloku sem hann fékk ígrædda árið 2005.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni. Konungur hefur verið nokkuð fjarverandi að undanförnu og þurft að afboða sig á ýmsa viðburði vegna veikinda.

Bjørn Bendz, læknir Noregskonungs, segir að konungur hafi gengist reglulega undir skoðun og sé það nú mat lækna að þörf sé á aðgerð til að bæta megi öndunina.

Er reiknað með að konungur verði staðdeyfður við framkvæmd hjartaaðgerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×