Átök í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. október 2020 06:17 Sóttvarnarhúsið er í þessu húsi við Rauðarárstíg þar sem vanalega er rekið hótel fyrir ferðamenn. Vísir/Vilhelm
Laust fyrir klukkan hálfátta í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um mann í sóttkví sem var að strjúka frá sóttvarnarhúsinu á Rauðarárstíg. Að því er segir í dagbók lögreglu fannst maðurinn við Hlemm og voru honum gefin fyrirmæli um að koma sér aftur í sóttvarnarhúsið sem hann og gerði. Um klukkutíma síðar, eða klukkan hálfníu, barst lögreglunni svo tilkynning um átök í sóttvarnarhúsinu. Var gestur hússins ósáttur við vistina í húsinu en hann róaðist eftir að hafa fengið tiltal frá lögreglu. Skömmu fyrir klukkan hálftíu var síðan tilkynnt um konu sem var að trufla AA-fund í Tjarnargötunni. Lögreglan ók konunni til síns heima. Þá var tilkynnt um rúðubrot í íbúðarhúsi í miðbænum laust fyrir hálfellefu í gærkvöldi en steini hafði verið kastað inn um stofuglugga. Klukkan sjö í gærkvöldi var síðan tilkynnt um eld við Skátaheimili í Hafnarfirði. Eldurinn reyndist vera varðeldur. Upp úr klukkan fjögur í nótt var tilkynnt um umferðarslys í Kópavogi. Ökumaður ók bíl sínum á umferðarljós en fór af vettvangi. Lögreglan stöðvaði hann skömmu síðar og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Beint flug til Peking komið í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Sjá meira