Innlent

Ösku­reið yfir „sið­leysi“ og „aumingja­dómi“ Krabba­meins­fé­lagsins

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Álfheiður Ingadóttir var heilbrigðisráðherra árin 2009 og 2010.
Álfheiður Ingadóttir var heilbrigðisráðherra árin 2009 og 2010. Samsett/Alþingi/Vísir/Vilhelm

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir forsvarsmenn Krabbameinsfélags Íslands sýna af sér siðleysi í framgöngu þeirra vegna mistaka við greiningu á leghálssýnum árið 2018. Forsvarsmenn gangist ekki við mistökunum heldur varpi í stað þess ábyrgðinni á fyrrverandi starfsmann.

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur fjallað ítarlega um mál Krabbameinsfélagsins síðustu daga. Ágúst Ingi Ágústsson sviðsstjóri leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að mannleg mistök hefðu verið gerð árið 2018 við greiningu á leghálssýni konu sem nú er með ólæknandi krabbamein.

Starfsmaður félagsins sem sinnti því að greina sýnin á þessum tíma hafi verið andlega veikur. Fram kom í máli Ágústs í kvöldfréttum að félagið hefði haft áhyggjur af starfsmanninum.

Álfheiður Ingadóttir var heilbrigðisráðherra árin 2009-2010. Hún segir í færslu á Facebook-síðu sinni sem birtist í gærkvöldi að hún eigi aðeins eitt orð yfir framgöngu forsvarsmanna Krabbameinsfélagsins í málinu: Siðleysi.

„Í stað þess að gangast við ábyrgð sinni á þeirri staðreynd að allt að 150 konur hafi fengið rangar niðurstöður á Leitarstöðinni, er sök varpað á einn fyrrverandi (og nánast nafngreindan) starfsmann – og það vegna veikinda hans!“ skrifar Álfheiður.

„En til að forðast einnig að taka ábyrgð á þeirri ásökun er skýrt tekið fram í yfirlýsingu félagsins að „ekki sé hægt að fullyrða um hvort heilsubrestur viðkomandi hefði stuðlað að því sem gerðist.“ Siðleysi!“

„Mannleg mistök sem alltaf geta orðið“ mikil einföldun

Álfheiður tekur fram að sér hafi verið annt um Krabbameinsfélagið en sjálf fór hún í krabbameinsmeðferð árin 1999 og 2007. Hún hafi stutt við félagið eins og henni var unnt í embætti sínu sem heilbrigðisráðherra. En nú vandar hún félaginu ekki kveðjurnar.

„Nú er ég lömuð og öskureið yfir aumingjadómnum sem birtist í kattarþvotti stjórnenda KÍ. Og get ekki fyrirgefið hversu grátt þeir hafa leikið hugsjónir þeirra sem byggðu upp þetta merka félag, en þeirra á meðal var faðir minn, sem var gjaldkeri KÍ um árabil og sat í vísindaráði þess.

Það urðu hörmuleg mistök. Það er hægt að kalla þau „mannleg mistök sem alltaf geta orðið“. En eftir kvöldið í kvöld er ljóst að það er mikil einföldun. Ég get ekki orða bundist.“

Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að verið væri að endurskoða yfir sex þúsund sýni frá árunum 2017 til 2019 sem umræddur starfsmaður hafði haft með höndum. 1.800 sýni hafa verið skoðuð og 2,5% kvenna kallaðar til frekari skoðunar þar sem þær fengu ranga greiningu. Það eru 45 konur.


Tengdar fréttir

Fyrirspurnum rignir inn frá áhyggjufullum konum og aðstandendum

Lögmaður konu sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna mistaka við sýnatöku segist hafa fengið fjölda fyrirspurna frá öðrum konum eða aðstandendum þeirra sem vilja athuga rétt sinn vegna mögulegra mistaka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×