Spánverjar jöfnuðu metin þegar uppbótartíminn var liðinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2020 20:45 Spánverjar fagna því að hafa jafnað metin undir lok leiks. Matthias Hangst/Getty Images Þjóðadeildin fór af stað í kvöld og stærsti leikurinn var án efa leikur Þýskalands og Spánar en liðin eru í riðli 4 í A-deild. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en Spánverjar jöfnuðu þegar uppbótartími leiksins var liðinn. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Þjóðverjar yfir snemma í þeim síðari með stórglæsilegu marki. Eftir að hafa spilað sig upp allan völlinn, frá hægir til vinstri, barst boltinn á Timo Werner inn í vítateig Spánar. Werner - sem gekk í raðir Chelsea á dögunum - fíflaði mann og annan áður en hann átti gott skot sem David De Gea, markvörður Spánar, réði ekki við. Spánverjar héldu að þeir hefðu jafnað metin í uppbótartíma en dómari leiksins flautaði aukaspyrnu á Sergio Ramos, fyrirliða Spánar, inn í vítateig Þjóðverja. Ramos gerðist brotlegur í aðdraganda marksins sem hinn ungi Ansu Fati skoraði. En það fór svo að Spánverjar jöfnuðu á endanum metin þegar vinstri bakvörðurinn Jose Gaya mætti inn í teig og skoraði með nánast síðustu spyrnu leiksins, lokatölur því 1-1. Mikil dramatík undir lok leiks en jafntefli eflaust sanngjörn niðurstaða þegar öllu er á botninn hvolft. Bæði lið stilltu upp sterkum liðum en það sást þó á leikmönnum að margir hverjir eru enn ryðgaðir enda nýkomnir úr sumarfríi. Í hinum leik A-riðils vann Úkraína 2-1 sigur á Sviss. Andriy Yarmalenko og Oleksandr Zinchenko skoruðu mörk Úkraínu á meðan Haris Seferovic skoraði mark Sviss. Þjóðadeild UEFA Fótbolti