Erlent

Boða nýja þjóðar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skot­lands

Kjartan Kjartansson skrifar
Meira en helmingur Skota segist nú fylgjandi sjálfstæði í skoðanakönnunum. Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar og Skoski þjóðarflokkur hennar, reyni að nýta meðbyrinn til þess að þrýsta á um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálfstæði var fellt með 55% gegn 45% í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir sex árum.
Meira en helmingur Skota segist nú fylgjandi sjálfstæði í skoðanakönnunum. Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar og Skoski þjóðarflokkur hennar, reyni að nýta meðbyrinn til þess að þrýsta á um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálfstæði var fellt með 55% gegn 45% í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir sex árum. Vísir/EPA

Skoskir þjóðernissinnar greindu í dag frá áformum sínum um að leggja fram ný drög að annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði sem þeir ætla að leggja fram fyrir þingkosningar á næsta ári. Meirihluti Skota hafnaði sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2014.

Kórónuveirufaraldurinn hægði tímabundið á hugmyndum Skoska þjóðarflokksins (SNP) um að hefja undirbúning að nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði í vor. Aukinn stuðningur við sjálfstæði í skoðanakönnunum hefur gefið þjóðernissinnum byr undir báða vængi og reyna þeir nú að sæta lags á meðan færi gefst, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Nicola Sturgeon, oddviti skosku heimastjórnarinnar og leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, hét því í dag að leggja fram drög að frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir þingkosningar á næsta ári. Í drögunum kæmi fram hvernig spurning um sjálfstæði yrði orðuð og dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Búist er við því að Skoski þjóðarflokkurinn vinni meirihluta í kosningunum á næsta ári. Það ætla þeir sé að nýta til þess að þrýsta á Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fallast á nýja þjóðaratkvæðagreiðslu. Breska þingið þarf þó að samþykkja slíka tillögu og Íhaldsflokkur Johnson hefur ítrekað lýst sig mótfallinn því að Skotar verði aftur spurðir um hug sinn til sjálfstæðis.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×